Breski vogunarsjóðurinn Lansdowne keypti þrettán milljónir hluta í TM Kristinn Ingi Jónsson skrifar 4. janúar 2018 06:00 Sjóður á vegum Lansdowne er áttundi stærsti hluthafi TM. Vísir/Anton Brink
Sjóður á vegum breska vogunarsjóðsins Lansdowne Partners keypti í síðasta mánuði 13 milljónir hluta í tryggingafélaginu TM. Er hann eftir viðskiptin áttundi stærsti hluthafi félagsins með 4,72 prósenta hlut, en í byrjun desember átti hann um 2,8 prósenta hlut. Sé tekið mið af meðalgengi hlutabréfa í TM í desember, sem var um 33 krónur á hlut, keypti sjóðurinn þannig hluti í félaginu fyrir um 430 milljónir króna í mánuðinum. Sjóðurinn á nú samtals 32 milljónir hluta í tryggingafélaginu og er eignarhluturinn metinn á um 1.050 milljónir króna miðað við gengi hlutabréfa félagsins eftir lokun markaða í gær. Auk fjárfestingarinnar í TM hefur sjóðurinn á undanförnum vikum bætt við sig hlutum í öðru tryggingafélagi, VÍS, olíufélaginu N1 og Fjarskiptum. Hann er á meðal stærstu hluthafa í öllum þessum félögum, með 6,85 prósenta hlut í VÍS, 8,06 prósent í N1 og 9,22 prósent í Fjarskiptum. Til samanburðar átti sjóður Lansdowne um 8,5 prósenta hlut í fjarskiptafélaginu í byrjun síðasta mánaðar. Auk þess á sjóðurinn 2,85 prósenta hlut í Símanum. Lansdowne hóf innreið sína á innlendan hlutabréfamarkað síðasta haust. Stuart Roden, stjórnarformaður sjóðsins, hefur látið hafa eftir sér að mikill vöxtur í hérlendri ferðaþjónustu geri landið að ákjósanlegum fjárfestingarkosti. „Við erum reiðubúnir til þess að fjárfesta á Íslandi þegar landið opnast,“ sagði hann í samtali við Reuters og bætti við að Ísland hefði gengið í gegnum „ótrúleg umskipti“ á undanförnum árum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Sjá meira