Hafa tekið yfir annað olíuflutningaskip Samúel Karl Ólason skrifar 31. desember 2017 10:33 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti nýjar þvinganir gegn Norður-Kóreu samhljóða í síðasta mánuði sem ætlað er að draga úr aðgangi ríkisins að eldsneyti. Vísir/AFP
Yfirvöld Suður-Kóreu hafa lagt hald á annað skip sem talið er að hafi verið notað til að flytja olíu til Norður-Kóreu. Skipið KOTI er skráð í Panama og áhöfn þess er að mestu frá Kína og Búrma, sem gengur einnig undir nafninu Mjanmar. Flutningur olíu til Norður-Kóreu er í trássi við ályktanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og refsiaðgerðir. Ákveðið var að leggja hald á skipið þann 21. desember, samkvæmt frétt Yonhap, en talið er að olía hafi verið flutt úr skipinu yfir í skip frá Norður-Kóreu út á hafi. KOTi getur borið allt að 5.100 tonn af olíu.Nýverið kom í ljós að Suður-Kóreumenn hefðu einnig lagt hald á skipið Lighthouse Winmore, sem skráð er í Hong Kong. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt Kínverja fyrir að hafa staðið að smyglinu. Þeir neita því þó. Skipið er í leigu félags frá Taívan.Sjá einnig: Smyglaraskip í höndum Suður-KóreuÖryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti nýjar þvinganir gegn Norður-Kóreu samhljóða í síðasta mánuði sem ætlað er að draga úr aðgangi ríkisins að eldsneyti. Bandaríkin hafa einnig lagt til að tíu skip sem sögð eru hafa verið notuð til að flytja olíu til Norður-Kóreu verði sett á bannlista. Lighthouse Winmore er á þeim lista en KOTI ekki, samkvæmt frétt Reuters.
Norður-Kórea Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Sjá meira