Knattspyrnugoðsögnin George Weah verður forseti Líberíu Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. desember 2017 19:14 George Weah, nýr forseti Líberíu. Vísir/afp
Gert er ráð fyrir að fyrrverandi fótboltamaðurinn George Weah muni bera sigur úr býtum í forsetakosningunum í Afríkuríkinu Líberíu. 98,1 prósent atkvæða hafa verið talin og hefur Weah hlotið 61,5 prósent þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórn ríkisins. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá. Andstæðingur Weah, varaforsetinn Joseph Boakai, hefur hlotið 38,5 prósent talinna atkvæða. Weah vann fyrri umferð kosninganna í október með 38,4 prósent atkvæða en þá hlaut Boakai 28,8 prósent. Weah mun taka við keflinu af Ellen Johnson Sirleaf, fyrsta kjörna kvenkyns forseta landsins. Sirleaf bar sigur úr býtum gegn Weah í forsetakosningunum árið 2005. Kosningarnar í ár marka fyrstu lýðræðislegu valdaskipti í Líberíu síðan árið 1944.Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal stuðningsmanna Weah í höfuðborg Líberíu, Monróvíu, þegar tilkynnt var um nýjustu tölur.Vísir/AFPWeah er 51 árs og spilaði fyrir fótboltalið á borð við AC Milan, Chelsea og Paris St. Germain á glæstum ferli sínum. Hann er eini fótboltamaður Afríkuríkis sem hlotið hefur gullknöttinn, Ballon D‘Or, en verðlaunagripurinn fellur í skaut besta knattspyrnumanns ársins. Weah var valinn sá besti árið 1995 en lagði skóna á hilluna árið 2002 og sneri sér þá að stjórnmálum.
Tengdar fréttir Þegar George Weah skaut Val út úr Evrópu Valsmenn veittu frönsku meisturunum í AS Monaco svo sannarlega verðuga keppni í 1. umferð Evrópukeppni Meistaraliða árið 1988. 17. desember 2013 12:45 Sonur George Weah semur við PSG Sonur líberísku goðsagnarinnar George Weah hefur gert þriggja ára atvinnumannasamning við Paris Saint-Germain. 4. júlí 2017 08:45 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira
Þegar George Weah skaut Val út úr Evrópu Valsmenn veittu frönsku meisturunum í AS Monaco svo sannarlega verðuga keppni í 1. umferð Evrópukeppni Meistaraliða árið 1988. 17. desember 2013 12:45
Sonur George Weah semur við PSG Sonur líberísku goðsagnarinnar George Weah hefur gert þriggja ára atvinnumannasamning við Paris Saint-Germain. 4. júlí 2017 08:45