„The magnificent seven.“ Með þessum orðum lýsti blaðamaður The New York Times fyrirsætunum Lindu Evangelista, Christy Turlington, Cindy Crawford, Naomi Campbell, Elle Macpherson, Claudiu Schiffer og Helenu Christensen árið 1996. Þessar fyrirsætur voru gjarna settar í svokallaða ofurfyrirsætugrúppu sem átti tískuheiminn á þessum tíma. Þá var varla hægt að fletta tískublaði án þess að sjá einhverja úr þessum hópi eða keyra framhjá stórum auglýsingaskiltum sem skörtuðu einhverri af þessum ofurfyrirsætum. Og nú eru þær mættar aftur, í allri sinni dýrð.
Í nýjasta tölublaði Glamour má finna fallegan myndaþátt eftir ljósmyndarann Anja Poulsen en við fengum svo tækifæri til að spjalla við Helenu og afraksturinn er skemmtilegt viðtal í blaðinu.

Það eru samt færri sem vita að Helena byrjaði að taka myndir áður en fyrirsætuferillinn hófst en það byrjaði allt þegar hún vann fegurðarsamkeppni í Danmörku árið 1986.
Ákveðinn viðsnúningur hefur átt sér stað í tískuheiminum undanfarin misseri. Æskudýrkunin er á undanhaldi og kallað hefur verið eftir meiri fjölbreytni, í aldri, stærð, húðlit og þannig mætti lengi telja.
Eitt af bestu augnablikum tískuvikunnar í Mílanó í haust var þegar þær Helena, Cindy Crawford, Claudia Schiffer, Naomi Campbell og Carla Bruni áttu svakalega innkomu á sýningu Versace, klæddar í gullkjóla og sýndu það þær hafa engu gleymt á tískupallinum en þetta gerðu þær til að heiðra minningu Gianni Versace.

Ekki missa af þessu fallega blaði sem er skyldulesning inn í hátíðirnar!
Glamour er farið af stað til áskrifenda og á leiðinni í allar helstu verslanir!
Tryggðu þéráskrift hér.