Fyrsta jurtalyfið á Íslandi - ný meðferð við þvagfærasýkingu frá Florealis 12. desember 2017 11:00
KYNNING Lyfjastofnun samþykkti nýverið jurtalyfið Lyngonia frá Florealis en þetta er í fyrsta sinn sem jurtalyf er viðurkennt af lyfjayfirvöldum á Íslandi. Lyngonia er unnið úr sortulyngsútdrætti og fæst nú í helstu apótekum án lyfseðils. „Fjölmargar konur upplifa endurtekna þvagfærasýkingu með tilheyrandi óþægindum. Í flestum tilfellum hafa konurnar notað ýmis ráð, allt frá því að drekka trönuberjasafa yfir í að fá tíma hjá lækni og meðhöndla sýkinguna með sýklalyfjum. Við erum mjög spennt fyrir að bjóða upp á fyrsta jurtalyfið á Íslandi sem er til meðferðar á einkennum vægrar, endurtekinnar þvagfærasýkingar, svo sem brunatilfinningu við þvaglát eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni,“ segir Elsa Steinunn Halldórsdóttir, doktor í lyfja- og efnafræði náttúruefna og þróunarstjóri Florealis. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á virkni sortulyngs og hafa sambærileg lyf verið notuð við þvagfærasýkingum víða í Evrópu.Lyngonia er fyrsta jurtalyfið sem samþykkt er á Íslandi Náttúran leikur veigamikið hlutverk í sögu lyfjafræðinnar því segja má að upphaf lyfjafræðinnar megi rekja til gróðurs jarðar. Plöntur framleiða mikið magn af efnum sér til varnar þar sem þær geta ekki flúið af hólmi þegar þær verða fyrir árás örvera, sveppa og annarra lífvera. Fyrir tíð sýklalyfja var jurtablanda úr sortulyngi algeng meðferð við slíkum sýkingum, en þess má geta að á sortulyng var fyrst minnst í lyfjaskrám árið 1926. Lyngonia er fyrsta jurtalyfið sem samþykkt er á Íslandi en ný reglugerð um slík lyf tók gildi í Evrópu árið 2011. Elsa telur lyfið góða viðbót við sýklalyf við meðferð á endurteknum þvagfærasýkingum.„Jurtalyfið er staðlað með tilliti til virkra efna sem tryggir að neytandinn fær alltaf réttan skammt af lyfinu sem er mjög mikilvægur þáttur til að tryggja verkun og öryggi lyfsins,“ segir Elsa.Rosonia, Liljonia, Aleria og Liljeria frá Florealis.Ört stækkandi vörulínaFlorealis er íslenskt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og markaðssetningu á jurtalyfjum og lækningavörum sem innihalda virk efni úr náttúrunni. Vörulína Florealis fer ört stækkandi en auk Lyngonia fást Rosonia og Liljonia við óþægindum á kynfærasvæði, Aleria við bólum og óhreinindum í húð og Liljeria við frunsum. „Við höfum fengið frábærar viðtökur við fyrstu vörunum okkar sem komu á markað hér á Íslandi í byrjun október. Í febrúar munu vörur Florealis fást í sænskum apótekum,“ segir Elsa að lokum.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira