Vinsælustu fatamerki ársins Ritstjórn skrifar 15. desember 2017 11:00 Glamour/Getty
Hvaða tískuhús voru vinsælust á árinu sem er að líða? Það kemur ekki á óvart að Gucci trónir á toppnum, en töskurnar og skórnir voru langvinsælastir frá þeim. Vetements var álíka vinsælt, enda mjög umtalað í tískuheiminum. Calvin Klein fékk einnig mjög mikla athygli í verslunum og seldist mjög vel. Danska merkið Ganni varð rosalega vinsælt út um allan heim, ekki bara í Evrópu eins og fyrri ár. Ný fatamerki eins og Halpern, með pallíettuflíkurnar sínar. Vinkonurnar sem stofnuðu nýlega merkið Attico urðu rosalega vinsælar, en þær eru þekktastar fyrir fallega kjóla úr vönduðum efnum. Ein vinsælasta taska ársins er Chloé Nile sem kom mörgum á óvart. Hún seldist mjög hratt upp í verslunum. Það er spurning hvort að þessi merki haldi vinsældum sínum áfram á næsta ári og hvaða nýju tískuhús koma inn. Það kemur engum á óvart að Gucci er eitt vinsælasta fatamerki ársins. Calvin Klein frá Raf Simons sló alveg í gegn. Off White er einn af nýliðum ársins og seldist mjög vel. Danska götumerkið Ganni verður alltaf vinsælla og vinsælla. Er það vegna markaðsherferða á Instagram, og fyrirsætanna sem klæðast oft merkinu. Vetements rauk úr hillum verslana, enda eitt umtalaðasta og vinsælasta merkið í heiminum í dag. Chloé Nile var ein vinsælasta taskan, og seldist jafn óðum upp. Vinkonurnar sem stofnuðu merkið Attico, fengu fyrst athygli fyrir flottan fatastíl. Síðar stofnuðu þær merkið Attico sem er orðið mjög vinsælt fyrir fallega kjóla úr vönduðum efnum. Halpern er breskt merki sem er einn nýliðana sem kom mest á óvart. Pallíettuflíkurnar hans seldust mjög vel.
Mest lesið Hárpartý á Hard Rock Glamour Bambi á forsíðu Glamour Glamour Fyrsta Glamourblað ársins komið út Glamour Cara vinnur að tónlist með Nile Rodgers Glamour Flækjuburstar fyrir alla fjölskylduna Glamour Kjóll Kate Middleton selst enn og aftur upp á örskotstundu Glamour Dóttir Beyonce sýnir danshæfileika sína Glamour Nærbuxur sem draga í sig blóði Glamour Penelope Cruz mun leika Donatellu Versace Glamour Rita Ora tekur við af Tyra Banks í America's Next Top Model Glamour