Maður tekinn með stuðbyssu á öldurhúsi á erilsamri nóttu lögreglu Kjartan Kjartansson skrifar 2. desember 2017 08:04 Rafbyssur skjóta rafskautum sem stuða fólk. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/AFP
Svo mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt að taka þurfti í notkun fangageymslur í lögreglustöðinni í Hafnarfirði til að koma öllum þeim sem voru handteknir fyrir. Á meðal þeirra sem var handtekinn var maður sem var tekinn á vínveitingastað með rafstuðbyssu. Í dagbók lögreglunnar eftir nóttina kemur fram að allar fangageymslur hafi verið fullar og rúmlega það. Það heyri til undantekninga að opna þurfi fangageymslurnar í Hafnarfirði. Engin alvarleg mál komu þó upp og flest málin tengdust neyslu áfengis og vímuefna. Starfsmaður í verslun í miðbænum tilkynnti um manninn með stuðbyssuna eftir að hann sá hann meðhöndlana hana inni í versluninni, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Maðurinn er þó ekki sagður hafa notað hana til að hóta neinum beint. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn farinn en lögreglumenn leituðu í nágrenninu. Fundu þeir manninn inni á bar þar sem lögreglan segir að ógæfumenn venji komur sínar. Rafstuðbyssan fannst á honum og einnig smáræði af fíkniefnum. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa en hann þótti ekki skýrsluhæfur þar sem hann var undir áhrifum vímuefna. Maðurinn verður kærður fyrir brot á vopnalögum og fyrir vörslu fíkniefna.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira