Herferð með Ed Sheeran í fararbroddi sögð „fátæktarklám“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. desember 2017 19:04 Söngvarinn Ed Sheeran sést hér ásamt götustrákum í Afríkuríkinu Líberíu. Herferðin, sem vekja á athygli á fátækt í landinu, hefur verið harðlega gagnrýnd. Vísir/Skjáskot
Breski söngvarinn Ed Sheeran er um þessar mundir andlit einnar af herferðum góðgerðarsamtakanna Comic Relief. Herferðin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að ala á skaðlegum staðalímyndum um fátækt, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins The Guardian. Leikararnir Eddie Redmayne og Tom Hardy eru einnig talsmenn sambærilegra herferða á vegum bresku hjálparsamtakanna DEC. Allar herferðirnar hafa nú verið tilnefndar til Radi-Aid-verðlaunanna fyrir að vera þær „skaðlegustu“ árið 2017. Markmið verðlaunanna er að fá hjálparsamtök á borð við Comic Relief og DEC að hverfa frá staðalímyndum um fátækt fólk í „þriðja heims ríkjum“ í öllu efni á vegum samtakanna. Í umsögn dómnefndar var herferð Sheeran, þar sem hann sést ræða við götubörn í Afríkuríkinu Líberíu, sögð jaðra við „fátæktarferðamennsku“, ákveðna grein innan ferðamannaiðnaðarins sem gagnrýnd hefur verið fyrir að gera fátækt að skemmtiefni fyrir ríka vesturlandabúa. Þá var herferð Hardy, sem vekur athygli á hungursneyðinni í Jemen, sögð afturhvarf til níunda áratugarins og herferð Redmayne enn fremur gagnrýnd harðlega fyrir að fjalla um fátækt á fordómafullan hátt. Framkvæmdastjóri Comic Relief, Liz Warner, sagði að samtökin tækju tilnefninguna nú til skoðunar. Samtökin væru nú enn meðvitaðri um að halda í við breytta tíma og að „ljá fólkinu, sem fjallað er um, rödd.“Myndband úr herferð Comic Relief, með Ed Sheeran í fararbroddi, má sjá hér að neðan.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira