Refsiaðgerðum haldið áfram þar til Rússar draga sig frá Úkraínu Kjartan Kjartansson skrifar 7. desember 2017 12:45 Tillerson gaf ekkert eftir með refsiaðgerðir gegn Rússum á fundi ÖSE. Óvíst er þó hversu lengi hann verður í embætti utanríkisráðherra áfram. Vísir/AFP
Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fullyrðir að refsiaðgerðum gegn Rússum verði ekki aflétt fyrr en þeir draga hersveitir sínar frá Úkraínu. Sakar hann Rússa um að vopna, þjálfa og berjast með uppreisnarmönnum í nágrannaríkinu. Á fundi með utanríkisráðherrum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) talaði Tillerson enga tæpitungu um ábyrgð Rússa á ástandinu í Úkraínu, að því er kemur fram í frétt Reuters. Fleiri en tíu þúsund manns hafa fallið í átökum í austurhluta landsins frá árinu 2014. Rússar hafa neitað að þeir taki þátt í átökunum eða sendi vopn til uppreisnarmannanna. „Við förum fram á við Rússa og bandamenn þeirra að binda enda á áreiti, ógnanir og árásir á sérstakar sendinefndir ÖSE,“ sagði Tillerson eftir að hann hafði fullyrt að Rússar hefðu átt upptökin að átökunum. Afstaða Tillerson er töluvert harðari en Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Forsetinn hefur talað við bættum tengslum við Rússa og Vlaidmír Pútín forseta þeirra. Á sama tíma stendur hins vegar yfir opinber rannsókn á því hvort að Rússar hafi reynt að tryggja Trump sigur í forsetakosningunum í fyrra og hvort að framboð Trump hafi átt í samráði við þá. Þá hafa heimildir hermt að Trump hefði í hyggju að reka Tillerson úr ríkisstjórninni á næstunni. Forsetinn hefur þó neitað því. Samskipti þeirra hafa virst stirð, ekki síst eftir að fréttir voru sagðar af því að Tillerson hefði kallað Trump „fávita“ í sumar.
Bandaríkin Tengdar fréttir Öryggismál í brennidepli á fundum Tillerson í Evrópu Rex Tillerson kemur til Brussel í dag. 4. desember 2017 10:27 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira
Öryggismál í brennidepli á fundum Tillerson í Evrópu Rex Tillerson kemur til Brussel í dag. 4. desember 2017 10:27