Stór flutningabíll valt í stjörnuvitlausu veðri í Vatnsskarði Kjartan Kjartansson skrifar 23. nóvember 2017 22:22 Þessi mynd var tekin í Vatnsskarði þegar aðstæður voru skaplegri en í kvöld. Vísir/GVA
Ökumaður flutningabifreiðar sem valt út af þjóðvegi eitt í Bólstaðarhlíðarbrekku í Vatnsskarði í kvöld slapp ómeiddur. Stjörnuvitlaust veður er á svæðinu, að sögn lögreglunnar á Blönduósi, og hafa fleiri bílar farið út af veginum þar. Veginum hefur verið lokað. Tilkynnt var um slysið kl. 20:24, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Blönduósi. Það átti sér stað ofarlega í brekkunni. Björgunarsveitarmenn úr Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð fluttu ökumanninn með sér þangað. Vegagerðin hefur nú lokað þjóðveginum um Vatnsskarð en þar er mikil hálka og éljagangur, að sögn lögreglu. Björgunarsveitarmenn og vegfarendur hafa hjálpað ökumönnum annarra bíla sem hafa farið út af í kvöld. Ekki er vitað um skemmdir á flutningabílnum sem var með tengivagn í eftirdragi. Lögregla gerir ráð fyrir að bíllinn verði fjarlægður um helgina. Lögregla vill ennfremur koma þökkum á framfæri til björgunarsveitarmanna sem hafa aðstoðað í vonskuveðrinu í kvöld.
Mest lesið Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Fleiri fréttir Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Sjá meira