Frjáls eftir að hafa setið saklaus inni í 39 ár Kjartan Kjartansson skrifar 23. nóvember 2017 23:16 Coley var rúmlega þrítugur þegar hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann er nú sjötugur. Vísir/Getty
Bandarískum manni sem sat í fangelsi í fjóra áratugi fyrir morð á konu og barni hennar hefur verið sleppt eftir að DNA-sannanir sýndu fram á sakleysi hans. Mögulegt er talið að sök hafi verið komið á manninn. Craig Coley, sem nú er sjötugur, var dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn í Kaliforníu árið 1980. Hann var sakfelldur fyrir morðið á fyrrverandi kærustu sinni, Rhondu Wicht, og fjögurra ára gömlum syni hennar, Donald, á heimili konunnar árið 1978. Wicht var barin og kyrkt en drengurinn kæfður. Coley var handtekinn daginn sem líkin fundus ten þau Wicht höfðu þá nýlega skilið að skiptum. Hann átti engan sakaferil að baki, að því er segir í frétt Reuters. Lífsýni sem talið var að hefðu glatað en komu í leitirnar á einkarannsóknarstofu komu Coley til bjargar þótt seint væri. Í því fannst erfðaefni úr nokkrum einstaklingum en ekki úr Coley. Lögreglan í Simi-dal, þar sem morðið var framið, hefur aðeins sagt að tæknin til að greina sýnið hafi ekki verið til þegar rannsóknin fór fram á sínum tíma. Hélt alltaf fram sakleysi sínuJerry Brown, ríkisstjóri Kaliforníu, náðaði Coley í gær á þeim forsendum að hann væri saklaus. Honum var sleppt úr fangelsinu í kjölfarið. Í náðunarbréfinu segir Brown að ekki sé loku fyrir það skotið að sökinni hafi verið komið á Coley. Lofaði Brown jafnframt sæmdina sem Coley hefði sýnt á meðan hann sat saklaus í fangelsi í öll þessi ár. Coley hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. Brown segir að í fangelsinu hafi hann forðast gengi og tileinkað sig trú. Lögreglan í Simi-dal segir málið sorglegt og heitir því að reyna að komast að því hver varð Wicht og syni hennar raunverulega að bana. Fleiri en 350 manns hafa verið hreinsaðir af sökum með DNA-rannsóknum í Bandaríkjunum frá árinu 1989. Að meðaltali höfðu þeir afplánað í fjórtán ár þegar þeir voru hresinaðir af sökum.
Bandaríkin Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Sjá meira