Börsungar með fjögurra stiga forskot á Spáni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. nóvember 2017 21:45 Lionel Messi. Vísir/Getty Argentínumaðurinn Lionel Messi markaði sinn 600. leik fyrir Barcelona með 2-1 sigri á Sevilla á heimavelli í lokaleik dagsins í La Liga. Messi náði þó ekki að skora í leiknum. Paco Alcacer kom Barcelona yfir á 23. mínútu eftir varnarmistök Sergio Escudero. Escudero komst inn í sendingu Luis Suarez, en leyfði Alcacer svo að stela boltanum af sér og Spánverjinn kláraði færið snyrtilega. Gestirnir jöfnuðu á 59. mínútu leiksins eftir að hafa ógnað marki Börsunga stuttu áður. Guido Pizarro skallaði þá boltann í netið eftir hornspyrnu. Það tók Börsunga hins vegar aðeins sex mínútur að komast aftur yfir og aftur var það Alcacer sem var á ferðinni. Þá potaði hann fyrirgjöf Ivan Rakitic í netið og var svo tekinn útaf um leið og hann hætti að fagna markinu. Barcelona þurfti að hafa fyrir sigrinum og er nú með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar á Valencia í öðru sætinu. Spænski boltinn