Lögreglan safnar sönnunargögnum með það fyrir augum að handtaka Weinstein Birgir Olgeirsson skrifar 3. nóvember 2017 21:32 Harvey Weinstein. Vísir/Getty
Lögreglan í New York í Bandaríkjunum er sögð hafa í vinnslu mál sem gæti leitt til handtöku kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein. Er málið sagt byggja á ásökunum leikkonu sem segir Weinstein hafa nauðgað henni fyrir sjö árum. Greint er frá þessu á vef The New York Times en blaðamenn á vegum fjölmiðilsins sátu blaðamannafund í höfuðstöðvum lögreglunnar á Manhattan fyrr í dag. Þar kom fram að lögreglan væri að safna sönnunargögnum með það fyrir augum að handtaka Weinstein. Leikkonan sem um ræðir er Paz de la Huearta en ásakanir hennar á hendur Weinstein hafa verið til rannsóknar hjá lögreglunni í nokkra daga. Umfjallanir um ásakanir á hendur Weinstein urðu þess valdandi að lögreglunni bárust fjöldi ábendinga um kvikmyndaframleiðandann. Weinstein er ekki staddur í New York þessa stundina. Talsmenn hans sögðu við New York Times að hann væri í meðferð sem færi fram fyrir utan New York. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að ekki er búið að handtaka hann nú þegar, því hann er ekki innan borgarmarka. Lögreglan segist þess í stað ætla að reyna að byggja um sterkt mál gegn honum með öflun frekari sönnunargagna. Lögmaður de la Huearta hefur greint frá því í viðtölum við fjölmiðla að Weinstein hefði brotið tvívegis gegn henni árið 2010 á meðan hún var í borginni. Leikkonan á að baki hlutverk í dramaþáttaröðinni Boardwalk Empire.
Mál Harvey Weinstein Bandaríkin MeToo Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira