Vildu sér verðskrá fyrir aðkomufólk á Akureyri Sveinn Arnarsson skrifar 20. október 2017 06:00 Aðkomumenn verða að fá sömu kjör og aðrir að mati bæjarlögmanns Akureyrar. Vísir/Pjetur
Stjórn Akureyrarstofu vildi kanna þann möguleika að bjóða Akureyringum sérkjör á þjónustu í sveitarfélaginu. Vildi hún athuga hvort hægt væri að keyra tvær aðskildar verðskrár í bænum, eina fyrir Akureyringa og aðra fyrir íbúa annarra sveitarfélaga. Bæjarlögmaður komst að þeirri niðurstöðu að þá væri líklega verið að mismuna fólki eftir búsetu. Tvö sveitarfélög hið minnsta reka aðskilda verðskrá fyrir íbúa sína.Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.Ástæða þess að Akureyrarbær óskaði lögfræðiálits á þessu er að sum sveitarfélög bjóða íbúum sínum sérkjör. Bæði í Árborg og Vestmannaeyjum til dæmis fá íbúar sérkjör í sund. Í Árborg fá börn og eldri borgarar frítt í sund en íbúar annarra sveitarfélaga þurfa að greiða fyrir þá þjónustu. Sömu sögu er að segja úr Vestmannaeyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir af og frá að í Eyjum sé mismunað eftir búsetu. „Þessi mannvirki eru greidd með skattpeningum íbúa í Vestmannaeyjum. Hér er ekki verið að mismuna eftir búsetu. Það er öllum frjálst að flytja til Vestmannaeyja,“ segir Elliði.Þórgnýr Dýrfjörð, Ddeildarstjóri Akureyrarstofu.„Niðurstaða lögfræðiálits bæjarlögmanns var að ekki væri hægt að mismuna fólki á þennan hátt eftir búsetu,“ segir Þórgnýr Dýrfjörð, deildarstjóri Akureyrarstofu. „Það er því ekki hægt að veita eingöngu Akureyringum kort af þessu tagi sem veitir þeim afslátt af þjónustu og afþreyingu. Því munum við líklega útbúa kort sem þetta en bjóða öllum þeim sem vilja að kaupa þá þessa þjónustu.“ Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður á Akureyri, segist hafa komist að þeirri niðurstöðu að Akureyrarbæ sé ekki heimilt að mismuna fólki eftir því hvar það býr. Þjónustan sé fyrir alla og því eigi að bjóða öllum sömu kjör. Spurð út í gjaldskrár bæði í Vestmannaeyjum og Árborg segir Inga þær á gráu svæði. Í beiðni um lögfræðiálit til bæjarlögmanns Akureyrar kom fram að tilgangur svokallaðs íbúakorts væri sá að greina íbúa frá gestum og keyra aðra verðskrá fyrir gesti bæjarins. Mögulegir staðir sem hægt væri að nota kortið á væri Hlíðarfjall, Amtsbókasafnið, Listasafnið, Gámasvæði fyrir sorp, Sundlaugar Akureyrar og almenningssamgöngur. Einnig átti að skoða hvort Minjasafnið, Flugsafnið, Iðnaðarsafnið og Leikfangasýningin gætu verið innan sérkjara bæjarbúa.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira