Ætla að funda aftur um kjörgengi Kristínar Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2017 06:00 Kristín Soffía var kjörin borgarfulltrúi árið 2014. Hún hefur búið í Danmörku á kjörtímabilinu. Vafi leikur á því hvort hún sé kjörgeng. Fréttablaðið/Ernir
Kristín Soffía Jónsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkurborgar, færði lögheimili sitt frá Reykjavík til Danmerkur hinn 8. apríl 2016, samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá. Samkvæmt upplýsingum úr fundargerðum Strætó bs. gegndi hún engu að síður skyldum borgarfulltrúa 18. apríl 2016 með því að taka þátt í stjórnarfundi Strætó í gegnum síma. Hún tók aftur þátt í fundi stjórnar Strætó í gegnum síma föstudaginn 29. apríl. Þetta má lesa úr fundargerðum stjórnar fyrirtækisins. Líf Magneudóttir„Þetta eru nýjar upplýsingar sem ekki lágu fyrir á sínum tíma og við vissum ekki af. Í ljósi þeirra hef ég ákveðið að boða til fundar í forsætisnefnd þar sem málið verður rætt og hver næstu skref verða,“ segir Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar. Hún segir að ekki megi leika vafi á kjörgengi borgarfulltrúa. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær leikur vafi á kjörgengi Kristínar Soffíu sem borgarfulltrúa. Í 37. grein samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar segir: „Þegar borgarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má borgarstjórn ákveða, að hans ósk, að hann skuli víkja úr borgarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í Reykjavík. Slík ákvörðun skal tekin áður en borgarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir borgarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.“ Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar, gefið þær skýringar að Kristín Soffía hafi verið í fæðingarorlofi frá júní 2016 til júlí 2017. Þetta orlof hafi verið tekið í samræmi við tilkynningar hennar til Reykjavíkurborgar og fæðingarorlofssjóðs. Borgarstjórn hafi ekki aðkomu að málefnum borgarfulltrúa í fæðingarorlofi enda sitji þeir ekki í borgarstjórn á meðan á því stendur. Nýjar upplýsingar benda hins vegar til þess að Kristín Soffía hafi fært lögheimilið áður en hún hóf töku fæðingarorlofs. Trausti Fannar Valsson, dósent í lögfræði við Háskóla Íslands, segir að það sé sveitarstjórnar að úrskurða um það hvort sveitarstjórnarfulltrúi hafi misst kjörgengi. Þeim úrskurði megi skjóta til ráðuneytis og úrskurði ráðuneytis megi skjóta til dómstóla. Ráðuneytið geti hins vegar tekið slík mál upp að eigin frumkvæði á grundvelli sveitarstjórnarlaga.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira