Kona handtekin vegna gruns um heimilisofbeldi Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. október 2017 07:45 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo próflausa einstaklinga í nótt sem báðir eru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkiefna. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók konu í nótt grunaða um heimilisofbeldi. Hún var vistuð í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Samkvæmt dagbók lögreglu var maður handtekinn í Spönginni grunaður um líkamsárás. Hann hótaði einnig lögreglumönnum og er nú vistaður í fangaklefa. Annar maður var handtekinn á sama stað fyrir að tálma starf lögreglu og var hann einnig vistaður í fangaklefa. Nokkrir voru teknir í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum. Klukkan 18:33 var tilkynnt um umferðaróhapp á Kársnesinu en grunur var um að annar ökumaðurinn væri ölvaður. Honum var sleppt að lokinni sýnatöku. Klukkan 19:50 var tilkynnt um umferðaróhapp á Vesturlandsvegi við Korputorg. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Ökumaður var stöðvaður á Vesturlandsvegi á 108 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi og er grunaður um aksturs undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Annar ökumaður var stöðvaður án ökuréttinda í nótt en hann var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann er einnig grunaður um vörslu fíkniefna. Seint í gærkvöldi var tilkynnt um hóp unglinga að skemma umferðarskilti við Árbæjarskóla í Reykjavík. Í kringum miðnætti var maður handtekinn í kjallara fjölbýlishúss. Hann var ofurölvi og ekki hægt að ræða við hann sökum ástandsins og var hann því vistaður í fangaklefa.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira