Titilvörnin hófst með tapi | LeBron frábær í sigri á Boston Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2017 07:18 James Harden og Draymond Green berjast um boltann í leik Houston og Golden State. vísir/getty
Tímabilið í NBA-deildinni hófst í nótt með tveimur stórleikjum. Meistarar Golden State Warriors þurftu að sætta sig við tap, 121-122, fyrir Houston Rockets á heimavelli. PJ Tucker tryggði Houston sigurinn með tveimur vítaskotum undir lokin. Stephen Curry tók lokaskot Golden State en það geigaði. James Harden var atkvæðamestur í liði Houston með 27 stig, sex fráköst og 10 stoðsendingar. Eric Gordon skoraði 24 stig og Tucker 20. Chris Paul, sem lék sinn fyrsta leik fyrir Houston í nótt, skoraði aðeins fjögur stig en tók átta fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Nick Young var stigahæstur hjá Golden State með 23 stig. Curry kom næstur með 22 stig. Draymond Green skoraði níu stig, tók 11 fráköst og gaf 13 stoðsendingar.Cleveland Cavaliers hrósaði sigri gegn Boston Celtics, 102-99. Boston varð fyrir áfalli strax eftir fimm mínútur þegar Gordon Hayward ökklabrotnaði í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Leikmönnum liðanna var brugðið og samherjar Haywards báðu fyrir honum. LeBron James átti frábæran leik fyrir Cleveland. Hann skoraði 29 stig, tók 16 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Kevin Love skoraði 15 stig og tók 11 fráköst. Derrick Rose og Dwayne Wade spiluðu sinn fyrsta leik með Cleveland og skiluðu samtals 22 stigum. Jaylen Brown skoraði 25 stig fyrir Boston og Kyrie Irving skoraði 22 stig og gaf 10 stoðsendingar gegn sínum gömlu félögum.Úrslitin í nótt: Golden State 121-122 Houston Cleveland 102-99 Boston
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira