Skoðun

Bann við verðtryggingu er galin hugmynd

Þorsteinn Víglundsson skrifar
Er bann við verðtryggingu allra meina bóta eða er verið að blekkja almenning með slíku tali? Er þetta þjóðráð eða hreint óráð? Því miður eru allar líkur á því að hið síðarnefnda eigi við. Ástæða hárra vaxta hér á landi er lítil og óstöðug mynt. Bann við verðtryggingu breytir þar ekki engu. Lausnin er að festa gengi krónunnar eða taka upp aðra mynt. Ef ekki er ráðist að rót vandans munum við áfram búa við tvisvar til þrisvar sinnum hærri vexti en nágrannalönd okkar. Verðtryggingin er sjúkdómseinkenni óstöðugleikans hér á landi, ekki orsök, enda er hvergi í nágrannalöndum okkar bannað að verðtryggja lán, það er bara óþarfi.

Það er umhugsnarvert þegar fjöldi stjórnmálamanna leggur sig fram um að blekkja almenning með yfirlýsingum sínum um að hægt sé að lækka vexti verulega með því einu að banna verðtryggingu. Þetta er sennilega ein glæfralegasta og vitlausasta hugmynd sem sett hefur verið fram af stjórnmálamönnum hér á landi í seinni tíð. Árið 2013 var skipaður starfshópur sem skoða átti mögulegt bann við verðtryggingu. Í skýrslunni var farið ágætlega yfir afleiðingar af algeru afnámi.  Kaupmáttur fólks myndi minnka verulega, fasteignaverð lækka og landsframleiðsla dragast saman. Seðlabankinn taldi t.d.  að á tveimur árum gæti fasteignaverð lækkað um 15-20%, einkaneysla dregist saman um 1,5-2%, gengi krónunnar myndi veikjast og vextir lækka um 0,5-1%.

Efnahagslegar hamfarir af mannavöldum

Hér er verið að lýsa efnahagslegum hamförum af mannavöldum yrði þessum hugmyndum hrint í framkvæmt. Ekki er hægt að taka aðvörunum Seðlabankans af neinni léttúð. 20% lækkun fasteignaverðs myndi þurrka út eigið fé þúsunda heimila í fasteignum sínum.. Í raun þarf ekki að eyða frekari orðum í þessa hugmynd, svo galin er hún. Enda varð ekkert úr framkvæmd á stefnu Framsóknarflokksins í þessum efnum.

Enn er þessari hugmynd hins vegar haldið á lofti. Þrír flokkar, Miðflokkurinn, Framsókn og Flokkur fólksins, hafa bann við verðtryggingu á stefnuskrá sinni. Jafnframt hafa formenn tveggja verkalýðsfélaga, VR og Verkalýðsfélag Akraness, haldið þessum hugmyndum mjög á lofti. Í ljósi aðvarana Seðlabankans mætti spyrja þá sem enn tala fyrir þessari leið hvers vegna þeir vilji leiða slíkar efnahagshörmungar yfir þjóðina.

Rót vandans liggur í örsmárri og óstöðugri mynt. Á meðan ekki er tekið á þeim vanda munum við búa áfram við mun hærri vexti hér en í nágrannalöndum okkar. Það hefur aldrei vantað að ekki sé hægt að taka óverðtryggt lán, það er bara miklu hærri greiðslubyrði af því en verðtryggðu. Verðtryggingin hefur verið okkar leið til að ráða við þá greiðslubyrði sem fylgir allt of háum vöxtum. Hún er sjúkdómseinkenni, ekki orsök vandans.

Höfundur er félags- og jafnréttismálaráðherra og oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×