Fyrirliðarnir velja sér leikmenn í sitt lið í Stjörnuleik NBA 2018 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2017 11:00 LeBron James gæti fengið aðra fyrirliðastöðuna. Vísir/Getty
NBA-deildin hefur gerbreytt fyrirkomulaginu á bak Stjörnuleik NBA en tilkynnt var um breytingarnar í gær. NBA hefur verið að reyna að rífa upp stemmninguna í kringum Stjörnuleikinn og Stjörnuhelgina síðustu ár en margir leikjanna síðustu ár hafa ekki þótt skemmtilegir enda frekar þriggja stiga skotæfing og troðslusýning heldur en alvöru körfuboltaleikur. Það hefur vantað meiri keppni en eftir mikið álag á leikmönnum í sjálfri deildinni þá hafa þeir ekki haft mikinn áhuga á öðru en að skemmta sér saman og passa upp á skrokkinn og kraftana í þessum Stjörnuleik. Það var því ákveðið að gera róttækar breytingar á fyrirkomulaginu í tengslum við það hvernig er valið í sjálf Stjörnuliðin. NBA sagði frá þessu á heimasíðu sinni. Lið Austur- og Vesturdeildarinnar heyra nú sögunni til. Tólf leikmenn komast áfram í Stjörnuleikinn úr hvorri deild en þeir spila ekki endilega í sama liði. Nú munu fyrirliðar hvor stjörnuliðs fyrir sig velja sér leikmenn á víxl eins og á gamla skólavellinum í gamla daga. Fyrirliðahlutverkið fá þeir leikmenn sem fá flest atkvæði í kjörinu á leikmönnum í Stjörnuleikinn. Næsti Stjörnuleikur mun fara fram í Staples Center í Los Angeles 18. febrúar á næsta ári. Nú í fyrsta sinn mun hagnaður af leiknum fara til góðgerðamála en hvort lið mun velja sér samtök sem það mun styrkja með sínum hluta af tekjunum af leiknum.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira