Sárasótt í mikilli sókn Birgir Olgeirsson skrifar 9. október 2017 15:24 Það sem af er ári 2017 hafa átján karlmenn og tíu konur greinst með sárasótt. Vísir/Anton
Aukning á fjölda tilfella af lekanda, sárasótt og HIV-sýkingu heldur áfram það sem af er ári 2017 og fjöldi klamydíutilfella er svipaður og árin á undan. Frá þessu er greint í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis. Þar segir að sárasóttin skeri sig úr og fjöldi greindra tilfella það sem af er ári sé langt umfram það sem greindist undanfarin ár. Það sem af er ári 2017 hafa átján karlmenn og tíu konur greinst með sárasótt en hlutfallslegur fjöldi karla sem greinast með sjúkdóminn er svipaður og árin á undan. Meðal aldur sýktra er 33 ár, á aldursbilinu 20 til 59 ára. Embættið segir konur greinast einnig með sjúkdóminn en tvær þeirra hafa greinst í mæðravernd. Segir embættið að þetta benda til þess að sjúkdómurinn, sem fyrst og fremst hefur verið tengdur karlmönnum sem hafa mök við karla, sé tekinn að breiðast til kvenna, meðal annars á barneignaaldri. Er tekið fram að þessi alvarlegi sjúkdómur geti meðal annars valdið fósturskaða. Nítján einstaklingar hafa greinst með HIV sýkingu á árinu. Meðalaldur hinna sýktu er 36 ár, á aldursbilinu 16 – 59 ára. Af þeim sem greinst hafa árinu er ein kona og ellefu eru af erlendu bergi brotnir. Embættið segir áhættuhegðun tengjast sýkingu hjá samkynhneigðum í sjö tilfellum, fíkniefnaneytendum í fimm tilfellum og gagnkynhneigðum í fjórum tilfellum. Óvíst sé um áhættuþætti í þremur tilfellum.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Fleiri fréttir Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Sjá meira