Lögreglan á varðbergi þegar United og Liverpool heimsækja Moskvu í næstu viku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2017 15:00 Stuðningsmaður Manchester United fær af sér "sjálfu“ með Alex Ferguson Vísir/Getty
Margir stuðningsmenn ensku liðanna Liverpool og Manchester eru að undirbúa ferð til Rússlands í næstu viku en þá munu lið þeirra spila Meistaradeildarleiki í Moskvu. Rússneska lögreglan hefur áhyggjur af komu ensku stuðningsmannanna og hefur látið það berast að lögreglan verði mjög sýnilega á götum Moskvuborgar þessa daga í næstu viku. BBC segir frá. Rússneskar knattspyrnubullur réðust á stuðningsmenn enska landsliðsins í Marseille á EM í Frakklandi sumarið 2016. Það þarf að passa upp á að stuðningshópum félaganna lendi ekki saman. Það er búist við því að um tvö þúsund stuðningsmenn þessara tveggja ensku liða ætli að leggja á sig þessa löngu ferð til Moskvu. Liverpool mætir Spartak Mosvku á þriðjudaginn en CSKA Moskva tekur á móti Manchester United daginn eftir. Forráðamenn Manchester United hafa ráðlagt sínum stuðningsmönnum að ganga ekki um borgina í búningi félagsins og aldrei að ganga einir um Moskvu. Samkvæmt upplýsingum Liverpool til síns stuðningsfólks þá eru yfirvöld í Moskvu með varúðarráðstafanir í gangi og lögreglan verður á varðbergi meðal annars í kringum hótel enska stuðningsfólksins. Liverpool og Manchester United eru að snúa aftur í Meistaradeildina eftir mislanga fjarveru. Liverpool gerði jafntefli við Sevilla í sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í þrjú ár 13. september síðastliðinn en Manchester United vann Basel á Old Trafford.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Körfubolti Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Handbolti Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ Íslenski boltinn „Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Fótbolti Strákarnir okkar mæta Messi fyrir HM Fótbolti Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Gylfi missir af upphafsleiknum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum Sjá meira