Carmelo Anthony fékk 34 milljónir í laun á hvern leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2017 17:45 Carmelo Anthony. Vísir/Getty
Carmelo Anthony hefur spilað sinn síðasta leik fyrir New York Knicks en félagið sendi stærstu stjörnuna sína til Oklahoma City Thunder um helgina. Árangur á tíma Anthony í New York var lítill sem enginn enda lék liðið aðeins samtals 21 leik í úrslitakeppninni á síðustu sjö tímabilum og komst ekki í úrslitakeppnina undanfarin fjögur tímabil. Sigurhlutfall New York Knicks liðsins á síðustu þremur tímabilum var aðeins 33 prósent eða bara 80 sigrar í 246 leikjum. Darren Rovell lék sér að því að reikna út hvað Carmelo Anthony fékk í laun á hvern dag og á hvern leik þessi tæpu sjö ár sem hann var leikmaður New York Knicks. Carmelo Anthony fékk alls 135,9 milljónir dollara fyrir sex tímabil og aðeins betur. 135,9 milljónir dollara eru 14,68 milljarðar íslenskra króna. Hann fékk 313.933 dollara í laun á hvern leik sem gera 33,9 milljónir íslenskra króna.$313,933: What the New York Knicks paid Carmelo Anthony PER GAME over the last 6 1/3 seasons. Made $135.9 million. — Darren Rovell (@darrenrovell) September 23, 2017 Hann fékk 56.444 dollara í laun á hvern leik sem leikmaður New York Knicks en félagið var með hann á launum í 2404 daga. 56.444 dollarar gera sex milljónir í laun á hvern einasta dag.$56,444: What Carmelo Anthony made every day as player on the New York Knicks. He was on the team for 2,404 days. pic.twitter.com/4lNVFBLoqw — Darren Rovell (@darrenrovell) September 23, 2017 Carmelo Anthony var með 24,7 stig, 7,0 fráköst og 3,2 stoðsendingar að meðaltali í 412 leikjum með New York Knicks en hann tók 19,9 skot að meðaltali í leik og hitti úr 44 prósent þeirra. Carmelo Anthony hefur vanalega leikið mjög vel með stjörnufullum landsliðum Bandaríkjanna og því verður gaman að sjá hvað hann gerir sem liðsfélagi Russell Westbrook og Paul George hjá Oklahoma City Thunder. Það er jafnframt mikil pressa á Anthony ætli hann að losna við „lúsera“ stimpilinn.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira