Æsingsóráðið banvæna Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 14. september 2017 07:00 Sebastian Kunz réttarmeinafræðingur bar vitni í máli ákæruvaldsins gegn Thomasi Möller Olsen í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Fréttablaðið/Vilhelm
Afar sjaldgæft er að æsingsóráðsheilkenni valdi dauða í kjölfar átaka milli tveggja óbreyttra borgara, segir réttarmeinafræðingurinn Sebastian Kunz. Þingfesting í dómsmáli gegn Sveini Gesti Tryggvasyni fer fram í dag. Sveinn Gestur er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða Arnars Jónssonar Aspar. Samkvæmt ákærunni lést Arnar af völdum nokkurra samhangandi þátta, þar á meðal æsingsóráðs. Heilkennið æsingsóráð (e. excited delerium) virðist valda mörgum heilabrotum, ekki síst vegna þess að það virðist nær eingöngu valda dauðsföllum við handtökur og önnur átök einstaklinga við lögreglu. „Heilkennið hefur verið töluvert mikið rannsakað meðal erlendra sérfræðinga,“ segir Kunz og bendir á vefinn PubMed, en þar má finna yfir 100 rannsóknir um heilkennið. Þá elstu frá árinu 1983. Sjálfur hefur Kunz unnið að rannsóknum á dauðsföllum í kjölfar rafbyssubeitingar undanfarin 10 ár. „Svona tilvik er hins vegar mjög sjaldgæft,“ segir Kunz og vísar þar til dauða Arnars.Sveinn Gestur Tryggvason er ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða Arnars Jónssonar Aspar. Fréttablaðið/Eyþór„Langalgengast er að það komi fram við handtöku eða önnur átök við lögreglu,“ Kunz segir að rannsóknir sýni að mjög óalgengt sé að einstaklingur komist í svo mikinn hugaræsing og líkaminn bregðist svo órökrétt við í samskiptum við annan óbreyttan borgara, að það valdi dauða. Aðspurður segir Kunz hluta ástæðunnar þó kunna að vera að þau tilvik þar sem lögregla á ekki hlut að máli séu síður rannsökuð. „Sá sem framkvæmir krufninguna þarf að þekkja til heilkennisins og einkenna þess til að ganga úr skugga um að það sé orsakaþáttur,“ segir Kunz. Tímaramminn skipti einnig miklu máli, því það verði erfiðara að greina einkennin eftir því sem lengri tími líði frá dauðsfallinu. Grunur um að heilkennið sé orsakaþáttur þarf því að vakna strax eða mjög fljótlega til að hægt sé að leita eftir því með áreiðanlegum hætti. Kunz líkir ástandi þess sem hefur einkenni æsingsóráðs við líkamsástand í kjölfar maraþonhlaups þegar líkaminn er á barmi uppgjafar. „Líkaminn hefur þann eiginleika að hægja mjög á sér við of mikla áreynslu, til að verja sig,“ segir Kunz. „Heilkennið kemur hins vegar fram þegar um mikla áreynslu er að ræða en aðrir þættir valda því að sá eiginleiki líkamans að slökkva á sér verður óvirkur. Við það fer líkaminn svo langt fram yfir það sem náttúrulegt og heilsusamlegt er í yfirkeyrslu að það veldur dauða.“Sveinn Gestur Tryggvason leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní.VísirAðspurður nefnir Kunz notkun örvandi fíkniefna, geðræna kvilla og mikinn hugaræsing sem dæmi um það sem valdið geti því að líkaminn hægi ekki á sér eins og hann á að gera. Varðandi mikilvægi þjálfunar lögreglumanna í að þekkja heilkennið og bregðast rétt við því nefnir hann dæmi frá Bandaríkjunum þar sem koma hefði mátt í veg fyrir dauða ef lögreglumenn hefðu fengið viðeigandi þjálfun. Starfandi lögreglumenn og lögregluþjálfarar á Íslandi fengu fræðslu um æsingsóráðsheilkennið fyrr á þessu ári. „Það var þjálfari frá lögreglunni í Ontario í Kanada, vottaður af Institute for the Prevention of In-Custody Deaths, sem hélt erindið og fór meðal annars sérstaklega yfir einkenni og viðbrögð,“ segir Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar. Lögreglufræðinemar við Háskólann á Akureyri hafi líka fengið fræðslu. Fæstir sem Fréttablaðið ræddi við í refsivörslukerfinu þekktu mikið til heilkennisins umfram þau tvö dauðsföll sem þekkt eru hér á landi. Auk tilviksins sem kemur við sögu í dómssal í dag lést maður árið 2007 í kjölfar handtöku á Hótel Sögu. Ákæra var ekki lögð fram í því máli en niðurstaða krufningar leiddi í ljós að maðurinn hefði látist af völdum heilkennisins. Fréttin birtist upphaflega í Fréttablaðinu.Uppfært klukkan 08:52Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar kom fram að aðalmeðferð færi fram í mælinu í dag. Hið rétta er að þingfesting í málinu er í dag. Hefur fréttin verið leiðrétt til að endurspegla það.
Birtist í Fréttablaðinu Stórfelld líkamsárás í Mosfellsdal Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Sjá meira