Kane „eini maðurinn sem getur náð markameti Shearer“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. september 2017 13:00 Harry Kane kom boltanum tvisvar framhjá markmanni Dortmund í gær. Vísir/Getty
Harry Kane, framherji Tottenham, er eini leikmaðurinn sem getur náð markameti Alan Shearer í ensku úrvalsdeildinni að mati Craig Bellamy. Hann sér mikil líkindi milli Real Madrid goðsagnarinnar Raúl og Kane. Bellamy var sérfræðingur í sjónvarpsþætti Sky eftir leik Tottenham og Dortmund í Meistaradeildinni í gær. Kane skoraði tvö síðustu tvö mörk Tottenham í 3-1 sigri í H-riðli Meistaradeildarinnar. „Þegar Kane steig fyrst fram á sjónarsviðið minnti hann mig mikið á Raúl,“ sagði Bellamy á Sky í gær. „Hann er ekkert sérstaklega snöggur en með mjög sniðugar hreyfingar. Hann veit hvar hann á að vera og getur skapað sér pláss úr engu.“ Hinn 24 ára gamli Kane er á sínu fimmta tímabili með Tottenham í úrvalsdeildinni. Hefur hann alls spilað 120 leiki og skorað í þeim 80 mörk. Þá varð hann markakóngur síðasta tímabils þegar hann skoraði 29 mörk í 31 leik. „Ef Kane heldur þessu áfram er hann eini maðurinn sem getur náð markameti Alan Shearer í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Bellamy. Þrátt fyrir ungan aldur á Kane þó nokkuð langt í land. Alan Shearer negldi boltanum alls 260 sinnum í netið á úrvalsdeildarferli sínum og er langmarkahæsti leikmaður í sögu deildarinnar. Næsti maður á listanum er Wayne Rooney með 200 mörk en ólíklegt verður að teljast að hann nái metinu áður en hann leggur skóna á hilluna.Sjá má mörkin úr leik Tottenham og Dortmund hér að neðan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Engin Wembley-vandræði hjá Tottenham | Sjáðu mörkin Harry Kane skoraði tvívegis þegar Tottenham vann 3-1 sigur á Borussia Dortmund í H-riðli. 13. september 2017 20:30 Evrópumeistararnir byrja vel | Öll úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni Átta leikir fóru fram í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 13. september 2017 20:49 Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Sjá meira
Engin Wembley-vandræði hjá Tottenham | Sjáðu mörkin Harry Kane skoraði tvívegis þegar Tottenham vann 3-1 sigur á Borussia Dortmund í H-riðli. 13. september 2017 20:30
Evrópumeistararnir byrja vel | Öll úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni Átta leikir fóru fram í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 13. september 2017 20:49