Gat ekki greitt fyrir veitingar og jós fúkyrðum yfir lögreglu Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. september 2017 21:39 Konan var auk þess í talsvert annarlegu ástandi sökum ölvunar og jós fúkyrðum yfir lögreglumenn á vettvangi. Vísir/Eyþór
Kona var handtekin vegna gruns um fjársvik í verslunarmiðstöð í hverfi 103 rétt fyrir 17 í dag, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan hafði pantað sér veitingar og neytt þeirra en reyndist svo ekki vera með peninga til þess að greiða fyrir veitingarnar þegar hún var innt eftir því. Hún var auk þess í talsvert annarlegu ástandi sökum ölvunar og jós fúkyrðum yfir lögreglumenn á vettvangi. Konan var vistuð í fangaklefa og verður þar þangað til hægt verður að ræða við hana. Þá var töluverður erill hjá lögreglu fram eftir degi í dag en klukkan 11:30 var tilkynnt um nytjastuld á bifreið í hverfi 108 í Reykjavík og um klukkan 13 var tilkynnt um þjófnað úr verslun í sama hverfi. Rétt eftir 13 var svo tilkynnt um karlmann sofandi ölvunarsvefni inni á pizzastað í hverfi 112. Lögreglan fór á vettvang og vakti manninn, sem varð mjög æstur og ógnandi í garð lögreglumannanna. Var hann því handtekinn og færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem hann var vistaður í fangaklefa. Við leit á honum fundust meint fíkniefni. Laust fyrir 14:30 var karlmaður handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna ölvunar og óspekta í miðborginni. Lögregla hafði haft afskipti af honum fyrr í morgun þar sem honum var gert að koma sér heim en hafði hann ekki orðið við því.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira