Elvar Már: Ég held bara að þetta sé munurinn á milli liðanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2017 13:16 Elvar Már Friðriksson í leiknum í dag. Vísir/Ernir
Elvar Már Friðriksson fékk að spila mun meira í leiknum á móti Frökkum en í hinum tveimur leikjunum og skoraði meðal annars sína fyrstu þriggja stiga körfu á Eurobasket. „Þetta var hrikalega erfitt. Við reyndum að hleypa leiknum svolítið upp og keyra á þá en en þeir eru með gríðarlega sterkt lið eins og við vissum,“ sagði Elvar eftir leikinn. „Þeir refsuðu fyrir hver einustu mistök í dag og hittu svakalega vel. Við sáum hversu góðir þeir eru,“ sagði Elvar en franska liðið er fullt af NBA-leikmönnum og leikmönnum í sterkustu deild Evrópu. Elvar og fleiri spiluðu meira í dag enda þurfti fleiri fætur til að fylgja leikskipulagi dagsins. „Við reyndum að hleypa tempóinu upp og keyra hrikalega hratt á þá. Við þurftum því að spila á fleiri mönnum því þetta var þriðji leikurinn í mótinu og það er ákveðin þreyta hjá þeim sem eru búnir að vera að spila meira. Þess vegna var hátt stigaskor,“ sagði Elvar en það voru fleiri sóknir í þessum leik en fyrri tveimur leikjum íslenska liðsins. „Mér fannst það bara heppnast ágætlega en ég held bara að þetta sé munurinn á milli liðanna,“ sagði Elvar en hvað með framhaldið? „Við setjum þetta fyrir aftan okkur og förum að einbeita okkur að næsta leik sem er Slóvenía. Við verðum bara að gíra okkur upp og gera allt til þess að vinna,“ sagði Elvar.
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deildin og Formúla 1 Sport Penninn á lofti í Keflavík Körfubolti Bonny til Inter Fótbolti Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira