Dregur hæfni Trump til að gegna embætti í efa Kjartan Kjartansson skrifar 23. ágúst 2017 15:49 James Clapper var með böggum hildar yfir fjöldafundi Trump í Arizona í gær. Vísir/AFP
James Clapper, fyrrverandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, dregur hæfni Donalds Trump til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna í efa eftir furðulega ræðu sem hann hélt í Phoenix í gær. Trump hótaði meðal annars að loka alríkisstjórninni til að knýja fjárveitingar fyrir landamæramúr út úr Bandaríkjaþingi, kenndi fjölmiðlum um flest sem miður hefur farið hjá ríkisstjórn hans og ýjaði að því að hann myndi sýkna sýslumann sem var dæmdur fyrir að óhlýðnast dómstólum. „Ég set virkilega spurningamerki við getu hans, hæfni hans, til að gegna þessu embætti,“ sagði Clapper við CNN-sjónvarpsstöðina í morgun.Gæti ráðist á Norður-Kóreu í bræðiÞá sagðist Clapper hafa hugsað til kjarnorkuvopnanna sem Trump ræður yfir þegar hann hlustaði á ræðu forsetans í Phoenix í gær, að því er segir í frétt Washington Post. „Hann gæti ákveðið að gera eitthvað í Kim Jong-un í bræðiskasti, það er í raun og veru mjög fátt sem stendur í vegi hans,“ sagði Clapper og vísaði til deilna Trump við leiðtoga Norður-Kóreu. Clapper hefur starfað við her og leyniþjónustu Bandaríkjanna alla sína stafsævi og gegnt trúnaðarstörfum í ríkisstjórnum jafnt demókrata og repúblikana. Hann lét af störfum sem yfirmaður leyniþjónustunnar í nóvember.
Donald Trump Tengdar fréttir Trump hótaði lokun alríkisstjórnarinnar á furðulegum fjöldafundi Fjölmiðlar, demókratar og þingmenn repúblikana fengu það óþvegið frá Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem sleppti af sér beislinu á fjöldafundi með stuðningsmönnum í Phoenix í gær. 23. ágúst 2017 10:26 Fyrrverandi yfirmaður njósnamála segir Trump ekki hafa verið hleraðan James Clapper, fyrrverandi yfirmaður njósnamála í Bandaríkjunum, segir fullyrðingar forsetans um hleranir vera fráleitar. 5. mars 2017 18:53 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira
Trump hótaði lokun alríkisstjórnarinnar á furðulegum fjöldafundi Fjölmiðlar, demókratar og þingmenn repúblikana fengu það óþvegið frá Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem sleppti af sér beislinu á fjöldafundi með stuðningsmönnum í Phoenix í gær. 23. ágúst 2017 10:26
Fyrrverandi yfirmaður njósnamála segir Trump ekki hafa verið hleraðan James Clapper, fyrrverandi yfirmaður njósnamála í Bandaríkjunum, segir fullyrðingar forsetans um hleranir vera fráleitar. 5. mars 2017 18:53