Veiði

Hnúðlaxar eru að veiðast víða á landinu

Karl Lúðvíksson skrifar
Hnúðlax sem veiddist nýlega í Héðinsfjarðarvatni
Hnúðlax sem veiddist nýlega í Héðinsfjarðarvatni Mynd: Haukur Sveinn Hauksson
Mynd af hnúðlaxahrúgu eftir ádrátt í Vesterelva í Noregi
Það hefur verið frekar sjaldgæft að fá hnúðlax í ám á Íslandi þó svo að það gerist á hverju ári en hingað til hefur þetta verið einn og einn fiskur.

Í sumar hefur aftur á móti borið meira á hnúðlaxi en dæmi eru um og staðfest tilfelli að nálgast annan tuginn og hann hefur veiðst í flestum landshlutum en að vestfjörðum undanskildum að okkur vitandi.  Hnúðlaxi var sleppt á sínum tíma í ár á Kólaskaga til að reyna byggja upp stofna þar og hefur síðan dreift sér víða við litla hrifningu.

Í Noregi hefur til að mynda verið dregið á nokkrar ár þar sem hnúðlaxinn hefur gengið í og það í magni sem hefur ekki áður sést.  Í gær var dregið á í Vesterelva og afraksturinn af því var 156 laxar og í heildina hafa veiðst 591 hnúðlax í ánni.  Fréttir af hnúðlöxum berast úr fleiri ám í Noregi, Bretlandi og Skotlandi og hafa veiðiréttarhafar í ánum þar sem þessir laxar hafa veiðst nokkrar áhyggjur af gangi mála.  Í ánni Koma í Finnmörku voru taldir til að mynda um 1200 hnúðlaxar og allir þessir laxar sem hafa veiðst eru komnir að hrygningu.

Hnúðlaxinn er Kyrrahafsfiskur sem gengur upp í árnar til að hrygna og til að mynda í British Colombia í Kanada hefur göngumynstrið verið annað hvert ár og einmitt á árum sem enda á oddatölu.  Spurningin er því sú hvort svipað göngumunstur sé að verða til í þeim stofni sem virðist vera festa rætur í norðanverðu Atlantshafi.








×