Ekið á hóp fólks í grennd við París Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. ágúst 2017 20:18 Bærinn Sept-Sorts er staðsettur í grennd við París en á mynd sjást lögreglumenn að störfum á vettvangi í kvöld. Vísir/afp
Þrettán ára stúlka er látin og að minnsta kosti fjórir eru alvarlega særðir, þar á meðal bróðir stúlkunnar, eftir að ökumaður keyrði bifreið sinni á hóp fólks sem sat að snæðingi á veitingastað í bænum Sept-Sorts í Frakklandi í kvöld. AP-fréttaveita greinir frá. Atvikið er ekki rannsakað sem hryðjuverk. Fólkið sat og borðaði kvöldmat úti undir beru lofti á veitingastað í bænum Sept-Sorts, sem staðsettur er í grennd við París, þegar keyrt var á það. Ökumaðurinn var handtekinn skömmu síðar en hann er andlega veikur.Uppfært klukkan 20:45: Ökumaðurinn, sem er fæddur 1985, er sagður hafa tjáð lögreglu að hann vildi fremja sjálfsmorð. Þá sagðist hann einnig hafa meðferðis vopn í bílnum sem er af tegundinni BMW. Ökumaðurinn virtist enn fremur ekki hafa komið áður við sögu lögreglu. Ekki er talið að um hryðjuverkaárás sé að ræða, að því er segir í frétt BBC, en maðurinn er þó sagður hafa ekið viljandi á fólkið.Uppfært klukkan 20:54:Í frétt breska dagblaðsins Guardian er maðurinn sagður hafa ekið á verönd fyrir utan veitingastaðinn, þar sem sátu um 20 manns, og að því búnu reynt að bakka í burtu. Hann hafi þó verið stöðvaður og lögreglumenn hafi mætt á staðinn skömmu síðar. Þá bendir ekkert til þess að öfgasamtök tengd Islam eigi einhvern hlut að máli en greinilegt þykir að maðurinn hafi glímt við andleg veikindi.Uppfært klukkan 21:41: Samkvæmt frétt BBC er maðurinn franskur og 32 ára en ekki 39 ára eins og fyrst var talið. Yngri bróðir stúlkunnar sem lést er á meðal hinna særðu. Talsmaður franska innanríkisráðuneytisins sagði að stúlkan hafi verið 13 ára, að því er segir í frétt Guardian. Í síðustu viku var ekið á hóp hermanna í París en sex særðust í árásinni. Hermennirnir höfðu staðið við hlið bifreiðar hjá Place de Verdun, ekki langt frá ráðhúsi sveitarfélagsins Levallois-Perret í norðvesturhluta Parísar.Eric de Valroger, saksóknari í Meaux, gaf fjölmiðlum upplýsingar um atvikið í kvöld.Vísir/AFP
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira