Þetta eru vinsælustu þynnkubanar Íslendinga Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. ágúst 2017 10:47 Einhverjir munu eflaust þurfa að grípa til þynnkubana um verslunarmannahelgina sem er framundan. Vísir/Getty
Þunnir Íslendingar drekka langflestir vatn til að losna við timburmenn, að því er fram kemur i niðurstöðum nýrrar könnunar MMR. Könnunin var sérstaklega gerð fyrir verslunarmannahelgina, sem nú er framundan, en ekki þykir ólíklegt að landsmenn glími einhverjir við þynnku á næstu dögum. Eins og áður sagði er vatnsdrykkja vinsælasta lausnin við þynnku en um 40 prósent sögðust grípa til vatnsins eftir kvöld á galeiðunni. Næstflestir, 24 prósent, tóku verkjalyf á borð við paracetamóls í glímu sinni við þynnku og 21 prósent gæddu sér á feitum mat. Enn aðrir sögðust drekka íþróttadrykki, eða 14 prósent aðspurðra, og 9 prósent fengu sér kaffi. Einungis 3 prósent gerðust þó svo djarfir að drekka meira áfengi, eða að fá sér svokallaðan „afréttara“, í von um að hrekja timburmennina á brott. 13 prósent sögðust hreinlega ekki gera neitt til að sporna við þynnku.Flestir drekka vatn við þynnku en fæstir fá sér afréttara.MMRÞá voru svarendur á aldrinum 18-29 ára líklegri til að fá sér vatn daginn eftir skemmtanahald en fólk eldra en 68 ára. Karlar voru líklegri en konur til að gera ekkert við þynnkunni. Stuðningsmenn Vinstri grænna voru líklegastir stuðningsmanna stjórnmálaflokkanna til að segjast aldrei drekka eða verða aldrei þunnir, eða 40 prósent. Stuðningsmenn Viðreisnar voru hins vegar ólíklegastir til þess. Úrtak könnunarinnar var einstaklingar 18 ára og eldri. 909 einstaklingar svöruðu könnuninni.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira