Skipulögðu tvær hryðjuverkaárásir í Ástralíu Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. ágúst 2017 07:46 Frá aðgerðum lögreglu í Sydney vegna málsins. Tveir hafa verið ákærðir fyrir að skipuleggja hryðjuverkaárás. Vísir/AFP
Tveir menn hafa verið sakaðir um að skipuleggja tvær hryðjuverkaárásir í Ástralíu. Mennirnir voru upphaflega handteknir vegna fyrirætlana sinna um að koma fyrir sprengju í flugvél en nú hefur komið í ljós að þeir reyndu einnig að smíða búnað sem dreifði eitruðu gasi. BBC greinir frá. Mennirnir eru taldir hafa notið aðstoðar hins svokallaða Íslamska ríkis en þeim mistókst að smygla sprengju um borð í flugvél Etihad-flugfélagsins, sem fljúga átti frá Sydney, þann 15. júlí síðastliðinn. Búnaðurinn sem dreifa átti eitruðu gasi var þó langt frá því að vera tilbúinn. Khaled Khayat, 49 ára, og Mahmoud Khayat, 32 ára, hafa verið ákærðir fyrir að „undirbúa, eða skipuleggja, hryðjuverkaárás.“ Þeir eiga yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsisvist, verði þeir dæmdir sekir. Tveir til viðbótar voru handteknir í áhlaupum lögreglu í Sydney á laugardag vegna málsins. Öðrum þeirra hefur verið sleppt. Lögregluyfirvöld segja að um sé að ræða eina vönduðustu og háþróuðustu hryðjuverkatilraun sem gerð hefur verið í Ástralíu. Áætlanir mannanna hafa þó allar orðið að engu í kjölfar aðgerða lögreglu á laugardag.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Enginn aðdáandi Harry og Meghan Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira