Flugu í veg fyrir bandaríska herflugvél Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2017 19:11 Kínversk J-10 rýfur hljóðmúrinn. Vísir/EPA
Flugmenn bandarískrar eftirlitsflugvélar þurftu að grípa til aðgerða þegar flugmaður kínverskrar herþotu flaug í veg fyrir eftirlitsvélina vestur af Kóreu-skaganum. Tveimur J-10 herþotum var flogið að vélinni, sem er af gerðinni EP-3, þegar hún var á flugi á alþjóðlegu flugsvæði yfir Austur-Kínahafi. Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna segja kínversku flugmennina hafa ógnað öryggi flugmanna sinna. Annarri J-10 vélinni var flogið á miklum hraða undir eftirlitsflugvélina og svo dróg flugmaður hennar verulega úr hraða hennar og flaug í veg fyrir eftirlitsvélina svo að flugmenn hennar þurftu að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir árekstur, samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar. Jeff Davis, talsmaður Pentagon, segir hegðun kínversku flugmannanna ekki í samræmi við fyrri aðferðir þeirra. Flugvélar Bandaríkjanna og Kína koma reglulega saman á svæðinu og Davis segir flugmenn Kína iðulega haga sér að mikilli fagmennsku. Yfirvöld Kína hafa þó reglulega kvartað yfir veru herafla Bandaríkjanna á svæðinu og þá sérstaklega í Suður-Kínahafi. Þar hefur Peking gert tilkall til nánast alls hafsvæðisins, upp að ströndum fjölda ríkja.
Suður-Kínahaf Mest lesið Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ók á ljósastaur við Grensásveg Innlent Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Innlent Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Innlent Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Erlent Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Innlent Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Innlent Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Innlent Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Innlent Fleiri fréttir Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Sjá meira