Smitaðist af mítli í gegnum kött og lést Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. júlí 2017 07:54 Ráðlegt er að hafa allan varann á þegar kemur að mítlum. Vísir/AFP
Japönsk kona lést úr lífshættulegum sjúkdómi, sem berst með mítlum, er hún hlúði að flækingsketti. Talið er að um sé að ræða fyrsta smit af þessu tagi sem berst á milli spendýrs og manns. Japanska heilbrigðisráðuneytið sagði konuna, sem var á sextugsaldri, hafa verið að hlúa að flækingsketti þegar hún smitaðist. Hún lést tíu dögum síðar úr sjúkdómnum SFTS en einkenni hans eru meðal annars alvarlega hár hiti og blóðflögufækkun. SFTS berst manna á milli með mítlum að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins. Ekkert mítilsbit var þó að finna á líkama konunnar og því telja læknar að konan hafi smitast af sjúkdómnum er hún gaf sig að kettinum, sem var sýktur. SFTS-sjúkdómurinn gerði fyrst vart við sig í Japan árið 2013 en dánartíðni þeirra sem smitast er allt að 30 prósent. Þá er hann sérstaklega erfiður fólki sem komið er yfir fimmtugt. Mítlar sem leggjast á fólk og sjúga blóð geta orðið til mikilla vandræða. Þeir eru hvað þekktastir fyrir að geta borið sýkil sem veldur svokölluðum Lyme-sjúkdómi í blóðgjafa sína.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira