Alþjóðleg handtökuskipun á hendur keðjusagarmanninum Kjartan Kjartansson skrifar 25. júlí 2017 11:01 Franz Wrousis réðst á fólk á skrifstofu tryggingafélagsins CSS í Schaffhausen. Vísir/AFP
Lögreglu hefur enn ekki tekist að hafa hendur í hári mannsins sem særði fimm menn með keðjusög í svissneska bænum Schaffhausen í gær. Talið er að maðurinn sé enn vopnaður söginni og að hann sé hættulegur. Alþjóðleg handtökuskipun hefur gefið út á hendur honum. Árásarmaðurinn, Franz Wrousis, er 51 árs gamall og býr í skóginum nærri bænum. Hann réðst á fólkið á skrifstofu tryggingafélags í miðbæ Schaffhausen skömmu eftir 10:30 að staðartíma. Fimm særðust í árásinni. Sá sem særðist verst er nú sagður kominn úr lífshættu, að sögn lögreglu. Fleiri en hundrað lögreglumenn frá Sviss og Þýskalandi hafa síðan leitað Wrousis en Schaffhausen er nyrst í Sviss, skammt frá þýsku landamærunum. Bíll Wrousis fannst í gær en hann var sjálfur víðsfjarri. Yfirvöld í Baden-Württemberg í Þýskalandi segja ekkert benda til þess að Wrousis hafi farið yfir landamærin, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.Með brotaferil á bakinuEkki liggur fyrir hvað manninum gekk til en Ravi Landolt, yfirmaður í lögreglunni, sagði á blaðamannafundi í gær að árásin hafi ekki verið handahófskennd. Hún hafi beinst að fólki hjá tryggingafélaginu. Wrousis hefur tvisvar verið dæmdur fyrir vopnalagabrot. BBC segir að nágranni mannsins hafi tilkynnt hann til lögreglu í tvígang eftir að Wrousis jós yfir hann fúkyrðum.
Tengdar fréttir Lögreglan í Sviss birtir mynd af árásarmanninum sem gengur enn laus Lögreglan í Sviss hefur birt mynd af manni sem réðst á fólk með keðjusög í bænum Schaffhausen í dag en fimm eru særðir eftir árásina, þar af tveir alvarlega. 24. júlí 2017 13:37 Árásarmaður gengur laus í svissneskum bæ Fimm eru særðir, þar af tvær alvarlega, eftir að óþekktur maður er sagður hafa gengið berserksgang með keðjusög í svissneska bænum Schaffhausen, nærri landamærunum að Þýskalandi. Lögreglan leitar að árásarmanninum. 24. júlí 2017 11:06 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Lögreglan í Sviss birtir mynd af árásarmanninum sem gengur enn laus Lögreglan í Sviss hefur birt mynd af manni sem réðst á fólk með keðjusög í bænum Schaffhausen í dag en fimm eru særðir eftir árásina, þar af tveir alvarlega. 24. júlí 2017 13:37
Árásarmaður gengur laus í svissneskum bæ Fimm eru særðir, þar af tvær alvarlega, eftir að óþekktur maður er sagður hafa gengið berserksgang með keðjusög í svissneska bænum Schaffhausen, nærri landamærunum að Þýskalandi. Lögreglan leitar að árásarmanninum. 24. júlí 2017 11:06