Bandarískur ráðherra ræddi um svínamykju í rússnesku símaati Kjartan Kjartansson skrifar 26. júlí 2017 10:18 Perry sagði grínistunum meðal annars að hann vonaði að brotthvarf Bandaríkjamanna frá Parísarsamkomulaginu skaðaði ekki samband þeirra við Úkraínumenn. Vísir/AFP
Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, ræddi fjálglega um aukinn útflutning á kolum til Úkraínu og svínamykju við þann sem hann taldi vera forsætisráðherra Úkraínu á dögunum. Í raun var hann hins vegar fórnarlamb símahrekks rússneskra grínista. Hrekkjalómarnir Vladimír Krasnov og Alexei Stolyarov eru þekktir fyrir að gabba stjórnmálamenn og frægt fólk. Þeir göbbuðu meðal annars Elton John, söngvarann knáa, sem taldi sig ræða við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Símtal þeirra við Perry í síðustu viku stóð yfir í rúmar tuttugu mínútur. Ræddu þeir meðal annars um refsiaðgerðir Bandaríkjastjórnar gegn Rússum og vinnslu olíu og gass í Úkraínu. Upptakan af símaatinu var birt í heild sinni á rússneskri vefsíðu.Lífeldsneyti úr heimabruggi og svínamykjuSagðist Perry meðal annars andsnúinn Nord Stream 2-gasleiðslunni sem Rússar vilja leggja um Eystrasalt til Evrópu og lýsti yfir vilja til að veita Úkraínumönnum tæknilega aðstoð til að vinna jarðgas. „Ég held að það séu í allra þágu að gefa Úkraínu fleiri möguleika með tækninni okkar fyrir utan Rússa en það er allt í lagi,“ sagði Perry meðal ananrs við grínistana. Gaf Perry einnig í skyn að Bandaríkin myndu auka útflutning sinn á kolum til Úkraínu. „Forsætisráðherra“ Úkraínu lýsti aftur á móti nýrri tækni í orkunýtingu fyrir Perry en hún átti að felast í því að blanda saman heimabruggi og svínamykju. Perry sagðist vilja fá frekar upplýsingar um þróun lífræna eldsneytisins, að því er kemur fram í Washington Post.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira