Eldsupptökin í Reykjahlíð í reykingaaðstöðu starfsfólks Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. júlí 2017 15:20 Sjö starfsmenn hótelsins bjuggu í húsinu en annar samstarfsmaður og nágranni varð eldsins var og bjargaði mannslífum að því er hótelstjórinn telur. pétur snæbjörnsson
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokið rannsókn á eldsvoðanum í Reykjahlíð við Mývatn í dag. Bráðabirgðaniðurstaða lögreglu bendir til þess að eldurinn hafi kviknað á palli fyrir utan húsið þar sem starfsmenn Hótel Reynihlíðar hafa aðstöðu til að reykja. Þetta staðfestir Gunnar Jóhannsson, lögreglufulltrúi í rannsóknardeild, í samtali við Vísi en fyrst var greint frá þessu á vef RÚV. Gunnar segir að verið sé að afhenda vettvanginn en hann kveðst ekki vita hversu mikið tjón varð í brunanum. Hins vegar sé ljóst að húsið er mjög illa farið. Sjö starfsmenn hótelsins voru í fastasvefni í húsinu þegar eldurinn kviknaði en samstarfskona þeirra sem býr í næsta húsi varð eldsins vör og gerði íbúunum viðvart. Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri Hótel Reynihlíðar, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að ljóst væri að konan hefði bjargað mannslífum með því að ná að láta samstarfsfólk sitt vita af eldinum. Enginn slasaðist eða fékk reykeitrun en Pétur sagði starfsfólkið í áfalli. Rauði krossinn brást við og hefur boðið öllu starfsfólki hótelsins sálrænan stuðning auk þess sem fjöldahjálparstöð var opnuð til að skjóta skjólshúsi yfir starfsmennina sem bjuggu í starfsmannahúsinu sem brann. Sjálfboðaliðar frá Húsvíkurdeild auk áfallateymis frá Akureyri sinna skjólstæðingunum, segir í tilkynningu Rauða krossins.
Tengdar fréttir Eldur í einbýlishúsi í þéttbýli við Mývatn Ung kona náði með snarræði að vekja upp fólk, sem var í fasta svefni í húsi í þéttbýlinu við Mývatn, skammt frá Reynihlíð, þegar mikill eldur gaus þar upp. 19. júlí 2017 07:12 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Eldur í einbýlishúsi í þéttbýli við Mývatn Ung kona náði með snarræði að vekja upp fólk, sem var í fasta svefni í húsi í þéttbýlinu við Mývatn, skammt frá Reynihlíð, þegar mikill eldur gaus þar upp. 19. júlí 2017 07:12