MR-ingar mótmæla: „Ráðning rektors á að vera fagleg en ekki hluti af einhverjum pólítískum leik“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. júní 2017 16:15 Greint var frá því í Fréttablaðinu í gær að kennari í MR óttaðist yfirvofandi sameiningu MR og Kvennó. Menntamálaráðherra segir ekki standa til að sameina skólana. Vísir/Stefán
Nemendur við Menntaskólann í Reykjavík hafa boðað til mótmæla fyrir framan húsnæði menntamálaráðuneytisins vegna óvissu sem ríkir um ráðningu í stöðu rektors við skólann. Formaður Skólafélagsins segir ástandið óviðunandi. Fyrrverandi MR-ingur segir viðbrögð ráðherra enn fremur í takt við samskipti skólans við yfirvöld á síðustu árum. Greint var frá því í Fréttablaðinu í gær að kennari í MR óttaðist yfirvofandi sameiningu MR og Kvennó. Grunur um sameininguna byggðist á því að staða rektors í MR, sem Yngvi Pétursson sagði lausri fyrir rúmum mánuði, hefur enn ekki verið auglýst. Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra sagði þó að ekki stæði til að sameina skólana. „Það er í sjálfu sér ekkert skrítið að fólk sé að velta fyrir sér ýmsu varðandi framhaldsskólann,“ sagði Kristján Þór í samtali við Fréttablaðið í gær. „Það þarf líka tíma til að átta sig á því hvernig breytingar sem koma fram í ríkisfjármálaáætlun og lúta að framhaldsskólunum koma til með að virka.“Elín María Árnadóttir, formaður Skólafélags MR.Elín María ÁrnadóttirNemendur hafa ekki fengið nein svörNemendur í MR eru komnir með nóg af óvissunni í kringum ráðningu nýs rektors og boða til mótmæla fyrir framan menntamálaráðuneytið næstkomandi föstudag klukkan 16. Elín María Árnadóttir, formaður Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík, segir í samtali við Vísi að ótækt sé að staða rektors hafi ekki verið auglýst. Hún segir ástandið til marks um stærra vandamál. „Við erum að mótmæla því að menntamálaráðuneytið sé ekki búið að auglýsa eftir nýjum rektor þrátt fyrir að Yngvi hafi formlega sagt upp fyrir meira en mánuði,“ segir Elín. „Við höfum enga hugmynd um af hverju staðan hefur ekki verið auglýst nú þegar en það eina sem maður getur ímyndað sér er að ráðherra ætli annað hvort að ráða tímabundið í stöðuna til eins árs, sem er í raun fáránlegt þegar svona mikill tími gafst til að finna nýjan rektor, eða þá að það stendur til að sameina skólann öðrum í skjóli nætur á meðan enginn fær rönd við reist.“ Hún segist ekki hafa fengið nein svör frá menntamálaráðuneytinu um stöðu mála þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir sínar og fleiri nemenda skólans. „Þetta er óásættanlegt því ráðning rektors á að vera fagleg en ekki hluti af einhverjum pólítískum leik.“Aðalbjörg Egilsdóttir útskrifaðist úr MR í fyrra.Aðalbjörg EgilsdóttirEins og sé verið að gefa skít í nemendurAðalbjörg Egilsdóttir útskrifaðist úr MR í fyrravor og lætur málefni skólans sig miklu varða. Hún deildi bréfi, sem hún sendi menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og forsætisráðherra, á Facebook-síðu sinni í gær. Bréfið hefur vakið mikla athygli en í því rekur hún þrautagöngu MR í samskiptum við yfirvöld á síðustu árum. Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra og fyrrverandi formaður Hollvinafélags Menntaskólans í Reykjavík, er sá eini sem hefur svarað bréfi Aðalbjargar. Hann sagðist ekki vita af hverju ekki væri búið að ráða nýjan rektor en gerði ráð fyrir að það yrði gert innan skamms. Aðalbjörg skrifaði bréfið áður en menntamálaráðherra tjáði sig um áhyggjur af sameiningu MR og Kvennó. Henni þykir ráðherra þó ekki nógu afdráttalaus í svari sínu. „En þrátt fyrir að ekki verði af þessari sameiningu þá finnst mér bara fáránlegt hvað bæði þessi og síðasta ríkisstjórn hafa verið að leggja sig fram við að draga saman í skólakerfinu,“ segir Aðalbjörg. Sjálf hefur Aðalbjörg glímt við aðgerðir stjórnvalda í málum MR. Á meðan skólagöngu hennar stóð var stytting á námi framhaldsskóla samþykkt en MR hefur lagst eindregið gegn styttingunni. Þá tók hún þátt í mótmælum MR-inga gegn lágum fjárframlögum til skólans, þeim lægstu á landinu, árið 2013. „Þetta er svolítið eins og það sé bara verið að gefa algjöran skít í okkur. Eiginlega bara eins og við eigum að sitja á hakanum og gleyma þessu. Það er eins og við þurfum endalaust að vera að biðja um meira en svo virðist aldrei neitt hægt að gera.“ Bæði Aðalbjörg og Elín segjast vona að umræðan um málefni skólans og mótmælin á föstudaginn verði til þess að nýr rektor verði ráðinn. Þá vonast þær einnig til þess að mótmælin veki stjórnvöld til umhugsunar um stöðu mála í menntakerfinu.Bréf Aðalbjargar til menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og forsætisráðherra má lesa í heild sinni hér að neðan.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira