Umfangsmikið kókaín- og steramál frestast þar sem tveir ákærðu eru látnir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júní 2017 09:30 Á myndinni má sjá um fjögur kíló af kókaíni. Myndin tengist fréttinni ekki á annan hátt. Lögreglan
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fjórum karlmönnum fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots. Þeir eru sakaðir um að hafa á árinu 2014 í samvinnu fjármagnað og skipulagt innflutning á að minnsta kosti fjórum kílóum af kókaíni frá Brasilíu. Efnið átti að selja í ágóðaskyni hér á landi. Um er að ræða hluta af ákæru á hendur níu Íslendingum, átta körlum og einni konu. Ákærunni má skipta í sjö aðskilin mál en þau snúa öll að innflutningi á ólöglegum efnum. Fíkniefnum annars vegar og sterum hins vegar. Sum ákærðu koma við sögu í mörgum málanna sem útskýrir hvers vegna þau eru öll tekin fyrir í eina ákæru. Málið átti að taka fyrir nú í júní en hefur verið frestað um ótilgreindan tíma þar sem tveir af níu ákærðu eru látnir. Annar lést snemma á árinu en hinn nýlega af slysförum. Því þarf að endurskoða ákæruna áður en málið verður tekið til meðferðar hjá dómstólum. Allt að tólf ára fangelsi getur beðið þeirra sem eru dæmdir fyrir fíkniefnainnflutning. Kókaín virðist njóta töluverðra vinsælda hér á landi um þessar mundir.Vísir/Hari Kókaín frá Brasilíu Hafþór Logi Hlynsson, 29 ára karlmaður, er einn fjórmenninganna sem er ákærður í tengslum við fyrirhugaðan innflutning á fjórum kílóum af kókaíni. Hann hefur áður hlotið þungan dóm fyrir fíkniefnainnflutning. Lagði hann tvær milljónir króna í verkefnið og greiddi að hluta fyrir uppihald eins ákærða í Brasilíu, rúmlega tvítugs íslensks karlmanns. Hafþóri er gefið að sök að hafa fengið sjö einstaklinga til að kaupa evrur á fimm daga tímabili í júní 2014 fyrir rúmlega 2,2 milljónir króna. Voru keyptir flugmiðar fyrir þessa sjö til þess að þeir gætu orðið sér úti um gjaldeyri. Þá er rúmlega þrítugur karlmaður ákærður fyrir að leggja til eina milljón króna í verkefnið að undirlagi Hafþórs Loga. Sá flutti fjármunina til Amsterdam þar sem þeir voru nýttir til kaupa á fíkniefninu MDMA. MDMA töflur úr fyrri málum sem komið hafa á borð lögreglu.Vísir/GVA MDMA í skiptum fyrir kókaín Það efni var svo nýtt til kaupa á kókaíni í Brasilíu. MDMA er aðgengilegra fíkniefni í Evrópu en kókaín sem er eftirsótt í álfunni þessi misserin á sama tíma og MDMA virðist furðu aðgengilegt. Sá er lést nýlega er gefið að sök að hafa keypt kókaín í Brasilíu sem flytja átti til Íslands. Hafþór Logi er sagður hafa verið í stöðugu sambandi við hina ákærðu á meðan á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi stóð. Þriðji maður er sömuleiðis ákærður fyrir að hafa fjármagnað innflutninginn. Fjórði maðurinn, sem einnig var sakaður um að hafa skipulagt og fjármagnað innflutninginn, lést nýlega af slysförum. Hann var einnig ákærður fyrir innflutning á hálfu kílói af kókaíni árið 2014. Sveinn Gestur Tryggvason, einn þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að manndrápinu í Mosfellsdal í síðustu viku, er ákærður fyrir að veita efninu móttöku á hóteli við Þórsgötu í Reykjavík. Fjallað var um aðkomu Sveins á Vísi fyrir helgi. Frá AMsterdam, þar sem MDMA var keypt.Vísir/Getty Afar sterkt kókaín í Amsterdam Hafþór er sömuleiðis ákærður ásamt fimm öðrum fyrir innflutning á 150 grömmum af kókaíni, um 85 prósent að styrkleika, frá Amsterdam sumarið og haustið 2014. Hafþór sendi öðrum ákærða, sem staddur var í Amsterdam og er gefið að sök að hafa útvegað fíkniefnin, 2200 evrur í tveimur greiðslum.Þá á Hafþór að hafa fengið þriðja ákærða í málinu til að senda sama manninum í Amsterdam 2700 evrur en peningarnir voru nýttir til að kuapa fíkniefnin. Burðardýrið, 29 ára karlmaður, flaut til London og þaðan til Amsterdam. Tók hann að sér verkefnið í því skyni að fá skuld fellda niður. Hann tók á móti efnunum í Amsterdam og flutti til Íslands innvortis og innanklæða í fjórum pakkningum. Þá er par á þrítugsaldri ákært fyrir að hafa fengið burðardýrið til verksins. Unnustinn er annar þeirra sem er látinn en hann lést snemma á árinu. Töluverð aukning virðist í steranotkun á Íslandi þessi misserin.Vísir/GettySterar og lyf í kílóavísÞá er Hafþór einn þriggja sem ákærður er fyrir umfangsmikinn innflutning á lyfjum frá Kína, allt að átta kílóum. Hinir tveir eru einnig ákærðir fyrir aðild að innflutningnum á fjórum kílóum af kókaíni. Um var að ræða um átta kíló af lyfjum s.s. nadrólon fenýlprópíonat, bensókaín og lídókaín, í samtals 220 pokum.Samkvæmt aðflutningsskýrslu, vörureikningum og innihaldslýsingu var matvara í pokunum. Sjá einnig: Steraæði á ÍslandiEinn mannanna er sömuleiðis ákærður fyrir stórfellt tolla-, lyfja- og lyfsölulagabrot með því að hafa í apríl 2014 flutt inn steralyf frá Kína, allt í allt um fimm kíló. Lögregla fann lyfin við húsleit á heimili hans í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Hann pantaði lyfin á netinu og greiddi fyrir með um sex þúsund dollurum, rúmlega sex hundruð þúsund krónum. Peningana sendi hann með Western Union.Hálfu ári síðari fann lögregla aftur lyf á heimili mannsins, sem hann hafði ekki markaðs- og lyfsöluleyfi fyrir, bæði á föstu og fljótandi formi. Er hann sömuleiðis ákærður fyrir þann hluta.Frétt DV frá árinu 2012.Týndur uppi á jökliHafþór Logi hlaut tveggja og hálfs árs dóm í Hæstarétti í nóvember 2012 fyrir að leggja á ráðin og standa að innflutningi á tæplega 900 grömmum af kókaíni til landsins. Úr efninu mátti framleiða um 3,7 kíló af kókaíni til neyslu. Æskuvinur Hafþórs hlaut þriggja ára dóm fyrir sinn hluta og þriðji maður átján mánaða dóm.Athygli vakti að burðardýrið í því máli var 71 árs gamall karlmaður en hann var tekinn í tollinum við komuna til Íslands frá Kaupmannahöfn. Sá játaði brot sitt og fékk mildari dóm fyrir að upplýsa um þátt annarra í málinu. Sagði hann mennina hafa hótað sér lífláti færi hann ekki í ferðina.Í því máli höfðu lögreglu borist ábendingar um að Hafþór flytti inn fíkniefni í ferðatöskum. Var gerð húsleit hjá honum í janúar 2010 og fundust þá plastbrot með holum rásum sem talin voru úr ferðatöskum. Á brotunum fundust kókaínleifar. Mánuði síðar var hinn 71 árs gamli handtekinn í flugstöðinni.Í framhaldinu ákvað lögregla að hlera síma Hafþórs þar sem honum var greint frá því að ekkert hefði heyrst frá burðardýrinu. Fóru umræður fram á á dulmáli þar sem velt var fyrir sér hvort burðardýrið væri „týnt uppi á jökli“ eða „að tjilla“. Týndur uppi á jökli þýddi að búið væri að handtaka manninn en „tjilla“ vísaði til þess að hann hefði ekki verið handtekinn.Hafþór hefur hlotið vel á annan tug refsidóma frá árinu 2002. Hann ítrekaði sakleysi sitt í málinu á Facebook eftir að dómur féll í héraði og sagðist ætla að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Þar var dómur hans þyngdur um sex mánuði.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Kókaínmaður í þriggja ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag fjóra menn fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni frá Danmörku í febrúar 2010. 15. nóvember 2012 16:42 Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira
Kókaínmaður í þriggja ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag fjóra menn fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni frá Danmörku í febrúar 2010. 15. nóvember 2012 16:42