Akraborgin siglir á ný Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. júní 2017 19:33
Flóasiglingar á milli Akraneskaupstaðar og Reykjavíkur hófust á ný nú í kvöld, á vegum Sæfara, eftir 19 ára hlé. Akraborgin sigldi jómfrúarsiglinguna um sjöleytið í kvöld og var margmenni um borð en ferðin tekur einungis 25 mínútur. Um sex mánaða tilraunaverkefni er að ræða. Heimir Már Pétursson, fréttamaður Stöðvar 2, var á staðnum og heyrði í Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur og Rakel Óskarsdóttur, bæjarfulltrúa á Akranesi, sem voru afar ánægð með verkefnið. „Rosalega margir skagamenn sem vinna í Reykjavík og hugsa sér gott til glóðarinnar nú, því það tekur klukkustund að keyra til Reykjavíkur en einungis 25 mínútur með ferjunni,“ segir Rakel sem segir að þetta sé tilvalið tækifæri fyrir ferðamenn til þess að heimsækja Akranes. Spurður hvort að verkefnið geti ekki haldið áfram til frambúðar og lengur en sex mánuði segir Dagur það velta á eftirspurninni. „Við beinum því bara til fólks að nýta sér þetta. Þá kemur eitthvað skemmtilegt út úr tilrauninni og kannski er framtíðin sú að tengja hverfi innan borgarinnar eða fleiri staði með bátastrætó.“ Þá segir Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða, að skipið sem sigli á milli sé draumaskip og sigli hratt yfir en siglt verður þrisvar á dag á milli staða. Siglingum var hætt á milli Akraness og Reykjavíkur árið 1998 með tilkomu Hvalfjarðarganganna. Fram að því hafði Akraborgin, eins og síðasti flóabáturinn var kallaður, siglt með farþega á milli bæjarfélaganna við miklar vinsældir. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum var kátt í hjalla þegar Akraborgin sigldi úr höfn frá Reykjavík og mikið af fólki.Sjá má stemninguna á Akranesi í spilaranum hér að ofan. Vísir/SindriVísir/HeimirVísir/Heimir
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira