Evrópuþingmenn stinga fé til skrifstofuhalds í eigin vasa Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 1. júní 2017 07:00 Nigel Farage, þingmaður á Evrópuþinginu, er sakaður um að hafa stungið sem nemur 2,3 milljónum króna í eigin vasa af fé sem átti að fara til heimaskrifstofu. vísir/EPA
Hver þingmaður á Evrópuþinginu fær sem samsvarar um 483 þúsund íslenskum krónum skattfrjálst á mánuði til að halda skrifstofu í heimalandi sínu. Hópur rannsóknarblaðamanna frá Evrópusambandslöndunum hefur nú sýnt fram á að margar þessara heimaskrifstofa eru í rauninni ekki til. Um sé að ræða svokallaðar draugaskrifstofur. Fénu á að verja til almennra útgjalda eins og til dæmis símreikninga, kostnaðar vegna tölvubúnaðar og síma auk annars sem þingmenn á Evrópuþinginu þurfa í daglegu starfi sínu, að því er greint er frá í Sænska dagblaðinu. Stór hópur þingmannanna, sem eru 751 talsins, greiðir sínum eigin stjórnmálaflokki peningana, sem er klárt brot á reglunum, eða stingur þeim í vasann. Í sumum tilfellum voru heimilisföng skrifstofanna, sem stjórnmálamennirnir gáfu upp þegar rannsóknarblaðamennirnir leituðu svara, ekki til. Þingmenn á Evrópuþinginu hafa sent féð sem á að fara til skrifstofuhalds til eiginkvenna sinna, barna og annarra ættingja í heimalöndum sínum. Starfsmenn Evrópuþingsins, sem ekki vilja koma fram undir nafni, segja að margir þingmannanna líti á féð til skrifstofuhalds sem bónusgreiðslu. Marine Le Pen, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Frakklandi, er sökuð um að hafa styrkt flokk sinn, National Front, með fénu. Breski stjórnmálamaðurinn Nigel Farage var nýlega sakaður um að hafa stungið sem nemur um 2,3 milljónum íslenskra króna af heimaskrifstofufénu í eigin vasa. Hann svaraði, og það réttilega, að honum væri ekki skylt að gera grein fyrir útgjöldunum. Evrópuþingið krefst ekki kvittana fyrir þeim. Sumir sænskir þingmenn á Evrópuþinginu kváðust aðspurðir hafa notað fé til kaupa á kaffi og ávöxtum fyrir skrifstofuna, til ferða og gistingar auk annars. Aðeins þingmenn umhverfisflokksins hafa það sem stefnu að framvísa kvittunum og skila fé sem ekki hefur verið notað. Krafist hefur verið meira gagnsæis en þingmenn hafa verið andvígir því. Síðast nú í apríl höfnuðu þingmenn því í atkvæðagreiðslu að þeir gerðu grein fyrir útgjöldunum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Fleiri fréttir Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Sjá meira