Barist um útgönguatkvæðin Jóhann Óli Eiðsson skrifar 7. júní 2017 09:00 Theresa May ásamt Philip, eiginmanni sínum, á kosningafundi í London í gær. vísir/epa
Bretar munu kjósa nýja þingmenn í fulltrúadeild þingsins á morgun. Kannanir ytra gefa misvísandi mynd af því hver niðurstaðan verður. Næsta víst þykir að Íhaldsflokkurinn hljóti flesta þingmenn en óvíst er hvort flokkurinn nái hreinum meirihluta. Könnunarfyrirtækið YouGov hefur daglega birt könnun á fylgi flokkanna en þær sýna þessa dagana fram á að Íhaldsflokkurinn muni tapa um tuttugu þingmönnum. Þar með missi flokkurinn meirihlutann. Meðaltalssamantektir ýmissa fjölmiðla, þar sem niðurstöður ýmissa kannana eru teknar saman í eina, benda hins vegar til þess að Íhaldsflokkurinn hafi um tíu prósenta forskot á sinn helsta keppinaut. Óvíst er hvort það skili sér í öflun þingmanna sökum einmenningskjördæmanna. Hryðjuverkaárásirnar tvær í Manchester og London hafa riðlað kosningabaráttunni umtalsvert. Var meðal annars gert hlé á henni í nokkra daga meðan þjóðin sleikti sárin eftir árásina í Manchester. Fylgi Verkamannaflokksins tók kipp eftir hléið en það virðist ekki hafa breytt kosningataktík Íhaldsflokksins. Athyglisvert er að bera saman hvaða kjördæmi forystumenn stærstu flokkanna tveggja, Theresa May og Jeremy Corbyn, hafa ákveðið að heimsækja síðustu vikur. Sú fyrrnefnda hefur aðallega beint sjónum sínum að borgum og bæjum þar sem Verkamannaflokkurinn hefur átt örugga kosningu hingað til. Meðal annars má þar nefna Suður-Bradford en þingmaður kjördæmisins hefur komið úr Verkamannaflokknum frá árinu 1918. Flest eiga kjördæmin hins vegar sameiginlegt að kjósendur þar kusu með útgöngu úr Evrópusambandinu. Þá má merkja af heimsóknum Corbyns að hann er örlítið að elta May og fer á svipaðar slóðir. Óttast er að kjördæmin, sem vildu úr sambandinu, séu líkleg til að snúast á sveif með Íhaldsflokknum. Báðir leiðtogarnir láta Skotland nánast ósnert enda talið næsta víst að Skoski þjóðarflokkurinn muni hirða öll þingsætin sem eru þar í boði. Þá bendir flest til þess að UKIP þurrkist út en hvert fylgi flokksins fer mun hafa mikil áhrif á niðurstöðuna. Snúist kjósendur flokksins á sveif með Íhaldsflokknum gæti það þýtt stórsigur Theresu May. Líkt og alkunna er var þingkosningunum nú flýtt af forsætisráðherranum May með það að markmiði að auka umboð stjórnar hennar í útgönguviðræðum Breta við Evrópusambandið. Íhaldsflokkurinn hefur haldið því fram að Verkamannaflokkurinn muni ekki geta stýrt þeim viðræðum en Corbyn hefur hafnað því. „Við erum með mjög gott teymi sem er mjög vel að sér í málum Bretlands og ESB,“ segir Corbyn. Kjósendum ætti ekki að standa ógn af því að kjósa flokk hans.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira