Stjarnan aldrei tapað leik í fyrstu fjórum umferðunum með Rúnar í brúnni Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. maí 2017 10:30 Eyjólfur Héðinsson skoraði sigurmark Stjörnunnar. vísir/ernir
Stjarnan varð í gærkvöldi fyrsta liðið til að vinna sjóðheita nýliða KA en Garðbæingar höfðu betur, 2-1, í stórleik gærkvöldsins með sigurmarki í uppbótartíma. Guðjón Baldvinsson kom Stjörnunni yfir á 22. mínútu áður en Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði metin á 42. mínútu. Það var svo Eyjólfur Héðinsson sem tryggði Garðbæingum sigurinn með marki á sjöttu mínútu í uppbótartíma. Stjarnan er ósigruð með tíu stig á toppnum í Pepsi-deildinni eftir fjórar umferðir og verður þar þegar umferðinni er lokið nema að Valur vinni fimma marka sigur á KR í stórleik umferðarinnar sem fram fer í kvöld. Það ætti kannski að koma neinum á óvart að Stjarnan sé taplaus á þessum tímapunkti því frá því að Rúnar Páll Sigmundsson var ráðinn þjálfari liðsins fyrir tímabilið 2014 hefur liðið aldrei tapað leik í fyrstu fjórum umferðunum. Íslandsmeistaraárið 2014 vann Stjarnan þrjá leiki og gerði eitt jafntefli í fyrstu fjórum og það sama gerðist 2016 og aftur í ár. Sumarið 2015 vann Stjarnan tvo leiki og gerði tvö jafntefli í fyrstu fjórum. Frá því Rúnar Páll tók við liðinu hefur Stjarnan unnið ellefu af sextán leikjum sínum í fyrstu fjórum umferðum Pepsi-deildarinnar, gert fimm jafntefli og ekki tapað einum leik. Liðið er búið að safna 38 stigum af 48 mögulegum í þessum leikjum eða 79 prósent.Stjarnan í fyrstu fjórum umferðunum undanfarin fjögur ár:2014 3 sigrar, 1 jafntefli2015 2 sigrar, 2 jafntefli2016 3 sigrar, 1 jafntefli2017 3 sigrar, 1 jafntefliSamanlagt 2014-2017 11 sigrar, 5 jafntefli 38 stig í húsi af 48 mögulegum (79%)
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - KA 2-1 | Þrumufleygur Eyjólfs í viðbótartíma tryggði sigurinn Eyjólfur Héðinsson var hetja Stjörnumanna í 2-1 sigri á KA í toppslag Pepsi-deildar karla á Samsung-vellinum sem lauk rétt í þessu en Eyjólfur skoraði sigurmarkið á seinustu mínútu uppbótartímans. 21. maí 2017 23:00 Mest lesið Þurfa að hlífa henni við fjölmiðlum vegna heilaþreytu Sport Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Íslenski boltinn „Ég hef ekki farið á blæðingar síðan 2014“ Sport Klæðnaður Mo Salah á bekknum vakti athygli Enski boltinn Andri Lucas búinn að skora meira en pabbi sinn Enski boltinn Setja fyrirliða sinn í bann fyrir lélegt viðhorf Fótbolti Sáttur eftir góðan sigur: „Fannst allir leggja í púkkið“ Handbolti Fimmtán tekjuhæstu íþróttakonur heims allar með meira en milljarð Sport Wirtz fékk ekki markið skráð á sig og nýliðarnir fögnuðu á Anfield Enski boltinn „Engar pásur“ hjá landsliðskonum sem þurfa að taka lokapróf á leikdögum Handbolti Fleiri fréttir Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Stjarnan - KA 2-1 | Þrumufleygur Eyjólfs í viðbótartíma tryggði sigurinn Eyjólfur Héðinsson var hetja Stjörnumanna í 2-1 sigri á KA í toppslag Pepsi-deildar karla á Samsung-vellinum sem lauk rétt í þessu en Eyjólfur skoraði sigurmarkið á seinustu mínútu uppbótartímans. 21. maí 2017 23:00