Skutu viðvörunarskotum að dróna sem flogið var yfir landamærin Samúel Karl Ólason skrifar 23. maí 2017 10:22 Frá landamærum Suður- og Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Her Suður-Kóreu skaut viðvörunarskotum að hlut sem flogið var yfir hlutlausa beltið á milli þeirra og Norður-Kóreu. Talið er að um dróna hafi verið að ræða, en ekki liggur fyrir hvort að hann hafi verið skotinn niður eða hvort honum hafi verið flogið aftur til norðurs.Samkvæmt AFP fréttaveitunni var um 90 skotum skotið úr vélbyssu að hlutnum. Mikil spenna er á svæðinu eftir ítrekaðar eldflaugatilraunir Norður-Kóreu, en yfirvöld þar hafa einnig hótað að sprengja kjarnorkuvopn í tilraunaskyni. Einungis tveir daga eru frá síðasta eldflaugaskoti Norður-Kóreu. Yfirlýst markmið þeirra er að þróa kjarnorkuvopn og eldflaugar sem geta borið slík vopn til Bandaríkjanna. Yfirvöld í Suður-Kóreu hafa ítrekað sakað nágranna sína um að fljúga njósnadrónum yfir landamæri ríkjanna. Viðvörunarskotum var skotið að einum slíkum í fyrra og árið 2015 voru þyrla og þota send á eftir dróna sem hafði farið yfir landamærin. Þá hafa drónar sem hafa hrapað fundist margsinnis í Suður-Kóreu.Yonhap fréttaveitan segir her Suður-Kóreu vera að fara yfir flugferil og hefur viðbúnaðarstig flugvarna ríkisins verið aukið.
Norður-Kórea Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Sjá meira