Brassarnir kom á Laugardalsvöllinn 13. júní Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2017 09:30 Brasilíski þjóðsöngurinn verður spilaður á Laugardalsvelli í júní. Vísir/Getty
Íslenska kvennalandsliðið mun spila vináttulandsleik við Brasilíu í júní en þetta verður kveðjuleikur íslenska liðsins áður en haldið er á Evrópumótið í Hollandi. Á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands kemur fram að samningur á milli KSÍ og brasilíska knattspyrnusambandsins um leikinn hafi verið undirritaður í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem brasilískt landslið spilar á Íslandi en íslenska karlalandsliðið hefur tvisvar spilað við Brasilíu út í Brasilíu. Brasilía er eitt af sterkustu landsliðum heims en meðal leikmanna er Marta sem leikur með Orlando Pride í Bandaríkjunum en hún var útnefnd leikmaður ársins af FIFA fimm ár í röð en jafnan verið meðal þeirra efstu í kjörinu. Marta er fyrirliði brasilíska landsliðsins en hún er markahæsta konan í úrslitakeppni HM kvenna frá upphafi. Thaisa, sem spilar með Grindavík í Pepsi-deildinni, var með brasilíska landsliðinu í apríl og þar spilaði einnig Francielle sem lék með Stjörnunni sumarið 2015. Þær ættu því að kannast vel við aðstæður á Íslandi. Brasilía er í níunda sæti á heimslista FIFA en Ísland er í átjánda sæti listans. Fimm dögum fyrir leikinn við Brasilíu þá munu íslensku stelpurnar spila vináttuleik við Írland í Dublin. Fyrsti leikur íslenska liðsins á EM er síðan á móti Frakklandi 18. júlí.
EM 2017 í Hollandi Fótbolti Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Sjá meira