Varað við heilsuspillandi íbúabyggð í Kapelluhrauni Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. maí 2017 07:00 Mikið pláss er í Kapelluhrauni sem varað er við að fari undir íbúðarhúsnæði ef reglugerð verður breytt. vísir/gva „
Heilbrigðisnefnd varar við breytingum varðandi búsetu á þynningarsvæðum mengunar,“ segir heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis í umsögn um fyrirhugaða breytingu á reglugerð um hollustuhætti. Það er umhverfis- og auðlindaráðuneytið sem hefur kynnt reglugerðarbreytinguna. „Skilgreint þynningarsvæði er til að vernda fólk. Það á ekki að setja fólk í þá stöðu að það þurfi að búa á slíku svæði. Heilbrigðisnefnd telur að breytingin leiði til þess að ekkert eftirlit verði með búsetu fólks á heilsuspillandi þynningarsvæðum,“ segir í bókun heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. Þynningarsvæði hafa verið skilgreind í kring um mengandi starfsemi þar sem varnarbúnaður nær ekki að ná niður mengunarálaginu. Í bréfi Guðmundar H. Einarssonar framkvæmdastjóra fyrir hönd heilbrigðisnefndarinnar segir að nefndin hafi í rúman áratug vakið athygli á nauðsyn þess að afla upplýsinga í þessum málum. Vísað er til langtíma rannsóknar Náttúrufræðistofnunar á þungmálmum í mosa. Þekking undanfarinna ára styrki þá skoðun að skýra þurfi betur staðsetningu íbúðarhúsnæðis til að ná markmiðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.Með þessari breytingu á reglugerðinni sem lögð er til má búast við að búseta fólks verði almenn á iðnaðarsvæðinu í Kapelluhrauni og því borið við að ekki sé um bráðamengun að ræða. „Slíkt yrði veruleg afturför í lýðheilsumálum,“ segir í bréfi framkvæmdastjórans. Eins og kunnugt er stendur álverið í Straumsvík neðan Kapelluhrauns. Guðmundur segir við Fréttablaðið að breytingin feli í sér að ekki verði lengur vísað til þynningarsvæða í reglugerð. Gamla ákvæðið vitni í reglugerð um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur valdið mengun. Það bjóði upp á hártoganir að fella þetta út. „Menn eiga að skrifa það sem þeir meina í reglugerð þannig að ekki sé verið að hártoga og segja: Getur þú sannað það? Þú sérð ekkert lík á götunum,“ segir Guðmundur. Hættan felist í því að hlutir séu ekki kallaðir réttum nöfnum í reglugerðinni og búseta á skilgreindum þynningarsvæðum ekki hreinlega bönnuð. „Þar sem er álver er flúor og brennisteinsdíoxíð mælt, en þá eru líka ýmis snefilefni sem er ekki verið að mæla, þungmálmar og kólísýklar. Það þarf að vernda almenning fyrir því sem hann getur ekki verndað sig fyrir sjálfur,“ segir Guðmundur H. Einarsson. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá umhverfisráðuneytinu, segir að enn sé verið að fara yfir umsagnir um reglugerðarbreytinguna og afstaða ráðuneytisins til einstakra umsagna liggi ekki fyrir. Reglugerðin hafi ekki tekið gildi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Sjá meira