Mótmæla að ráðherra flytji valdið í borgina Sveinn Arnarsson skrifar 5. maí 2017 07:00 Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verður þynnt. vísir/vilhelm
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga víðsvegar á landinu gagnrýna harðlega lagabreytingar sem fela í sér að eftirlit og verkefni séu færð frá héruðum á landsbyggðinni til Reykjavíkur. Lagðar eru fram tillögur um verkefnatilfærslu og breytingar á starfsemi og verksviði heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga. Útgáfa starfsleyfa færist frá heilbrigðiseftirlitum um land allt til Umhverfisstofnunar. Þessu mótmæla eftirlitin sem telja þessa þjónustu eiga að vera í nærsamfélagi.Björt ÓlafsdóttirSkýrsla atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra um Matvælastofnun, sem kynnt var þann 27. mars síðastliðinn, frumvarp til laga um Umhverfisstofnun sem nú er í umsagnarferli og frumvarp Bjartar Ólafsdóttur um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir fela í sér tillögur sem breyta starfsemi og verksviði heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands, segir mikilvægt að sveitarfélögin missi ekki forræði yfir málaflokki sem hefur verið í góðu horfi um árabil. „Á síðustu árum hefur eftirlit færst frá sveitarfélögum til stofnana á höfuðborgarsvæðinu. Við teljum þetta vera þróun í ranga átt.“ Bæjarráð Fjarðabyggðar ályktaði einnig á síðasta fundi sínum gegn breytingunum. Að mati bæjarráðs munu þær veikja hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. „Dæmin sanna, svo ekki verður um villst, að margar opinberar stofnanir hafa ekki getu til að sinna eftirliti um land allt. Hér virðist vera á ferðinni barátta um opinbert fjármagn frekar en að tryggð sé góð þjónustu við íbúa og fyrirtæki,“ segir í bókun bæjarráðs.Sigurjón Þórðarson líffræðingurSigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, segir þessar breytingar veikja mjög eftirlit sveitarfélaga. „Hætt er við því að verði þetta frumvarp að lögum óbreytt veiki það fjárhagslegan grundvöll sveitarfélaga til þess að sinna skyldum sínum við fyrirtæki og stofnanir í nærbyggð.“ Samband sveitarfélaga segir það undrum sæta að frumvarpið hafi verið lagt fram á þingi. Bætt hafi verið inn grundvallarbreytingum í frumvarpið án vitneskju aðila sem áttu aðkomu að gerð frumvarpsins. „Af hálfu sambandsins er því gerður verulegur fyrirvari við ákveðin efnisatriði í frumvarpinu,“ segir í umsögn Sambands sveitarfélaga.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Kosning Sáda í kvennanefnd SÞ sætir gagnrýni Sjö lönd sátu hjá og 47 sögðu já þegar kosið var um aðild Sádi-Arabíu að kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna, SÞ. Að sögn sænska utanríkisráðuneytisins er ekki hægt að greiða atkvæði gegn aðild einhvers ríkis. 4. maí 2017 07:00 Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira
Kosning Sáda í kvennanefnd SÞ sætir gagnrýni Sjö lönd sátu hjá og 47 sögðu já þegar kosið var um aðild Sádi-Arabíu að kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna, SÞ. Að sögn sænska utanríkisráðuneytisins er ekki hægt að greiða atkvæði gegn aðild einhvers ríkis. 4. maí 2017 07:00