Rannsóknir á vændi nánast þurrkast út Snærós Sindradóttir skrifar 5. maí 2017 07:00 Vændisstarfsemi fer fram vítt og breitt um land allt en lögreglan ver litlum tíma til rannsókna á kaupunum. Rannsóknir þykja flóknar. vísir/ernir
Mikið hefur dregið úr rannsóknum lögreglu á vændiskaupum undanfarin ár, frá því sem var fljótlega eftir að kaup á vændi voru gerð refsiverð. Eitt mál hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur endað með dómi síðastliðin þrjú ár. Vændiskaup voru gerð refsiverð árið 2009 þegar hin svokallaða sænska leið var innleidd. Lögin kveða á um að óheimilt sé að kaupa vændi en ekki selja vændi. Strax á eftir fór lögreglan í umfangsmiklar aðgerðir í samræmi við hin nýju lög og árið 2010 voru ellefu karlmenn ákærðir fyrir að kaupa vændisþjónustu af Catalinu Ncogo eða þeim stúlkum sem hún hafði gert út í vændisstarfsemi. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónnvísir/anton brink Árið 2014 gaf Ríkissaksóknari svo út fjörutíu ákærur á hendur karlmönnum fyrir brot gegn kaupum á vændi. Árið 2013 kom 81 vændismál inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á síðastliðnum þremur árum hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft níu mál til meðferðar. Þrjú þeirra hafa farið til ákærumeðferðar þar sem einu lauk fyrir héraðsdómi, eins og áður segir. Rannsókn var hætt í fjórum málanna og tvö mál eru enn til rannsóknar. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að rekja megi fækkunina til forgangsröðunar hjá lögreglu og skorts á fjármagni og mannafla. „Þetta eru erfið mál í rannsókn og tímafrek. Þessi mál eru oft þannig vaxin að það er kannski enginn sem tilkynnir um brot. Þetta eru eins og fíkniefnaviðskipti, hvorki seljandi né kaupandi vilja fá afskipti lögreglu. Þau eru svolítið öðruvísi en mörg önnur mál og kannski erfiðara að rannsaka þau þess vegna.“ Refsing vegna vændiskaupa getur numið allt að einu ári í fangelsi. Það þýðir að lögregla hefur ekki lagalega heimild til að beita símhlerunum í vændiskaupamálum. Friðrik segir að það þýði að rannsóknir á málunum krefjist einfaldlega yfirlegu og mikils mannskapar. Lögregla þurfi beinlínis að sitja við og fylgjast með heimsóknum þeirra grunuðu þar sem meint vændisviðskipti eiga sér stað. „Við þurfum að forgangsraða mannskapnum. Þar setjum við kynferðisbrot og brot gegn lífi og líkama efst í forgangsröðunina. Svo koma önnur mál þar á eftir, stærri fíkniefnabrotin eins og hægt er og svo framvegis. Vændið fer fram á bak við luktar dyr en ekkert væri ómögulegt í rannsókn ef við hefðum tíma, fjármagn og mannskap.“
Birtist í Fréttablaðinu Mál Catalinu Ncogo Vændi Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira