Mikilvægt að gera þetta hægt og rólega Íslandsbanki kynnir 8. maí 2017 18:00 Hrefna Rósa Sætran.
Fyrsta íbúð Hrefnu Rósu Sætran var langt frá því að vera draumaíbúðin hennar, en í dag stendur hún í framkvæmdum í draumahúsinu í Skerjafirði. Hún hefur haft gaman af því að spara frá því hún var barn og leggur mánaðarlega inn á framtíðarreikninga fyrir börnin sín. Hún ætlar sér að vera mörg ár til viðbótar að dúlla við draumahúsið sitt. „Fyrir svona sex árum síðan keypti ég neðri hæðina í húsi hér í Litla Skerjafirði. Þetta er einbýlishús sem var búið að skipta í tvær íbúðir og það var kona sem bjó á efri hæðinni. Íbúðin kostaði sama og blokkaríbúð,“ segir Hrefna Rósa. „Draumurinn var að búa til mitt draumahús og vinna í því og ekki gera þetta á einni nóttu. Mér finnst skemmtilegt að vaxa með húsinu.“ Hrefna Rósa hefur alltaf reynt að leggja fyrir og er með sparnaðarreikning. „Mér finnst gaman að safna inn á bankabók, finnst gaman að sjá tölurnar vaxa, bara frá því ég var barn.“Kom heim í fyrstu íbúðina til að sofa „Fyrsta íbúðin sem ég keypti mér ein var alls ekki draumaíbúðin mín, hún var mjög langt frá því,“ segir Hrefna Rósa. „Ég var að opna Fiskmarkaðinn, fyrsta veitingastaðinn minn og hugsaði með mér: ég er ekki að fara að vera í þessari íbúð. Ég rétt kom og svaf þar þannig að hún var bara svona kassi.“ Þegar kom að því að kaupa íbúðina þurfti Hrefna Rósa að fara í greiðslumat og til að geta haft það eins hátt og hægt var, vann hún alla daga í nokkra mánuði. „Ég ætlaði að reyna að bústa upp launaseðilinn og var að læra að vera kokkur, ekkert rosalega spennandi launin þá. Þannig ég ákvað að taka uppvask á móti þannig að ég var 15 daga í eldhúsinu og 15 daga sem uppvaskari. Ég gerði þetta í nokkra mánuði og fór með þetta í bankann og fékk þannig hærra greiðslumat.“ Stendur loksins í framkvæmdum „Þannig að þetta hefur ekki alltaf verið dans á rósum,“ segir Hrefna Rósa. „Og það er ekki í hverjum mánuði sem maður hefur eitthvað til að leggja fyrir. Ef maður fær aukaverkefni eða dettur auka peningur inn þá er fínt að spara hann.“ Í dag sex árum seinna á Hrefna Rósa allt húsið og er í svaka framkvæmdum. „Ég er samt búin að safna ágætri fjárhæð til að standa í þessu. Mér finnst mjög mikilvægt að gera þetta hægt og rólega og mér finnst betra að eiga fyrir hlutunum, ég vil ekki demba mér í skuldir.“Leggur inn á sparnaðarreikninga fyrir börnin „Ég á tvo börn, fjögurra ára stelpu og fimm ára strák,“ segir Hrefna Rósa. „Ég stofnaði sparireikning fyrir þau og legg alltaf inn 5000 kr. á mánuði. Þann pening langar mig að gefa þeim þegar þau verða eldri. Ég finn ekki sérstaklega fyrir þessu, en í dag er þetta orðin svolítið stór upphæð. Húsið á að vera tilbúið í sumar og þá vill Hrefna Rósa að það sé bara tilbúið þannig að hægt sé að búa í því. „Ég ætla svo að vera mörg ár í viðbót að dúlla við það.“ Þetta var saga Hrefnu Rósu, hvernig viltu að þín saga verði? Pantaðu ráðgjöf og komdu til okkar og gerðu þitt plan. Greinin er kostuð af Íslandsbanka en hún er hluti af Það er hægt, verkefni bankans um fyrstu kaup á fasteign.
Það er hægt Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira