Thomas frábær með tárin í augunum og Boston er búið að jafna metin Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. apríl 2017 07:30 Isaiah Thomas spilaði virkilega vel. vísir/getty
Boston Celtics jafnaði í nótt rimmuna á móti Chicago Bulls í átta liða úrslitum austurdeildar NBA með 104-95 sigri á útivelli. Boston er búið að vinna tvo í röð í Chicago eftir að tapa fyrstu tveimur heima. Boston hafnaði í efsta sæti austursins en Chicago rétt slefaði inn í úrslitakeppnina. Celtics-liðið varð þó fyrir áfalli þegar systir leikstjórnanda þess, Isaiah Thomas, lést í bílslysi skömmu fyrir fyrsta leik. Thomas viðurkenndi eftir leikinn í nótt að vera engan veginn tengdur inn í leikina þar sem hann er eðlilega langt frá því að vera kominn yfir dauðsfall systur sinnar. „Andlega og tilfinningalega er ég ekki til staðar. Ég nærist bara á því sem liðsfélagar mínir gera. Þeir veita mér mikið sjálfstraust. Ég gæti þetta ekki án liðsfélaga minna,“ sagði Thomas eftir leikinn í nótt. Hann spilaði frábærlega og skoraði 33 stig auk þess sem hann gaf sjö stoðsendingar en Al Horford skilaði líka finni tvennu með fimmtán stigum og tólf fráköstum. Jimmy Butler bar að vanda höfuð og herðar yfir Chicago-liðið í stigaskorun en hann setti 33 stig auk þess sem hann gaf níu stoðsendingar og tók fimm fráköst. Næsti leikur liðanna fer fram í Boston. Utah Jazz jafnaði svo metin á móti LA Clippers með 105-98 sigri á heimavelli. Gamla brýnið Joe Johnson fór þar á kostum með 28 stigum af bekknum en Chris Paul skoraði 27 stig fyrir Clippers.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira