Menning

Gljúfrasteinn opnaður almenningi á ný eftir fimmtán mánaða lokun

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar

Gljúfrasteinn, heimili Halldórs og Auðar Laxness, verður opnað almenningi á ný eftir fimmtán mánaða lokun vegna viðgerða á laugardag.



„Það er allt tilbúið eftir mjög langa lokun. Þannig að þetta er stór dagur fyrir okkur. Við erum bókstaflega búin að pakka niður safninu, fara með í geymslur, taka það upp aftur og koma okkur fyrir aftur,“ segir Guðný Dóra Gestsdóttir, safnstjóri Gljúfrasteins, en rætt var við Guðnýju í kvöldfréttum Stöðvar 2.



Mikil vinna liggur að baki, en safnið á að vera alveg eins og þegar Auður yfirgaf það.



„Þetta var eins og risastórt púsluspil að setja allt heimilið saman,“ segir Guðný.



„Þetta var eiginlega eins og þetta væri menningarsendiráð. Eftir að Halldór fékk Nóbelsverðlaunin þá þótti eðlilegt að koma hingað með opinbera gesti. Sænski konungurinn kom hérna í tvígang og svo kom Olof Palme hingað, svo dæmi séu tekin.“



Það kennir ýmissa grasa í Gljúfrasteini. Á efri hæð hússins geta gestir til að mynda litið inn á skrifstofu Halldórs. Á skrifborðinu má sjá handrit eftir hann og blýantsstubbinn sem hann notaði við skrif. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.